Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Skinfaxi

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Skinfaxi

						UMHVERFISVERND

Umhverf isvernd til frambúðar

Hefur þú hugleitt hvað það er

sem spillir náttúru og umhverfi

íslands? Hefur þú hugleitt hvað

það er sem þú getur gert til þess

að stemma stigu við mengun?

Við íslendingar erum stoltir af því að

eiga hreina og óspillta náttúru, við önd-

um að okkur hreinu lofti, getum drukkið

hreint vatn og borðað ómengðan ís-

lenskan mat. Því miður eru margir sem

urunnar pappírsvörur, óbleiktar og klór-

fríar, þegar þú kaupir t.d. kaffipoka,

klósettpappír, eldhúsrúllur, bleiur, skrif-

pappír, umslög, stílabækur, ljósritunar-

og tölvupappír og eggjabakka. Bentu

öðrum á að gera slíkt hið sama. Lestu á

umbúðir þvottaefna og veldu þau sem

innihalda sem minnst af hættulegum

efnum; bleikiefnum, ilmefnum, fosföt-

um og mýkingarefnum sem takmörkuð

þörf er fyrir. Notaðu sem minnst af

þvottaefnum,   hvort  heldur  sem  er  í

Krœkiberin hrein holl ogfögur, verða þauþað áfram?

Ljósm. B.Þ.

hafa ekki gert sér grein fyrir þvf að nátt-

úra landsins getur ekki haldist óspillt án

þess að nokkuð sé að gert. Það erum við

sem verðum að breyta hugsunarhætti

okkar hvað varðar óþarfa neyslu og inn-

kaup á vörum og notkun á bflnum. Við

verðum að athuga hverju við hendum í

ruslafötuna. Akveðin efni mega ekki

ganga í samband við lífkeðjuna því það

hefur hættuleg áhrif á umhverfið, heilsu

okkar og afkomenda okkar. Þetta er í

raun einfalt í framkvæmd og ef allir taka

höndum saman leiðir það til þess að við

getum stemmt stigu við þeirri hættulegu

þróun að landið verði mengun að bráð.

Innkaup

Þegar þú verslar næst skaltu hugleiða

hvort þær vörur sem þú velur geti á ein-

hvern hátt haft skaðleg áhrif á umhverf-

ið.

Veldu frekar vörur sem ekki eru

einnota, t.d. flöskur í stað dósa, keyptu

ekki pappadiska eða glös og veldu vörur

sem eru í margnota umbúðum. Kvartaðu

við kaupmanninn ef þér finnst vörunum

pakkað inn í óþarflega miklar plastum-

búðir sem skaða umhverfið. Veldu end-

þvottavélina, uppþvottinn eða ræstingar-

vatnið.

Skilagjaldsvörur

Umbúðir utan af öli, gosdrykkjum og

áfengi má ekki henda í ruslatunnuna.

Þessar umbúðir er hægt að selja til end-

urvinnslu eða endurnýtingar. Leitaðu

upplýsinga í þínu sveitarfélagi um það

hvert þú getur komið þessum umbúðum

svo þær lendi ekki í tunnunni.

Bíllinn

Sparaðu bflinn, útblástur bílsins

mengar andrúmsloftið. Hafðu bílinn

ekki í gangi ef þú þarft að bíða fyrir

utan verslanir eða skreppa út til þess að

ræða við fólk. f Þýskalandi er bannað að

hafa bfla í gangi meðan beðið er eftir

rauðu ljósi. Það er líka miklu heilsusam-

legra að ganga sé þess nokkur kostur.

Að henda í ruslið

Til eru fjölmörg efni sem ekki má

henda í ruslafötuna, því þá eiga þau

greiða leið að fæðukeðjunni. Rafhlöður

innihalda ýmis hættuleg efni sem geta

valdið tjóni á heilsu manna og umhverfi.

Ef þú þarf að losna við rafhlöður getur

þú farið með þær á næstu bensínstöð, en

í einstökum verslunum eru líka söfnun-

arbox sem taka við þeim. Skilaðu göml-

um lyfjum í næsta apótek frekar en að

henda þeim.

Garðaúrgangur

Vissir þú að úrgangurinn úr garðin-

um þínum er fyrirtaks áburður? Allan

lífrænan úrgang úr garðinum getur þú

nýtt til þess að búa til góða gróðurmold.

Það sem þú þarft að gera er að úfbúa

sérstakan kassa fyrir garðúrganginn í

einu horni garðsins. Þangað setur þú

þann úrgang sem safnast saman við

garðhreinsunina. Og það sem meira, er

þú getur sett kaffikorginn, grænmetisaf-

ganga, telauf, eggjaskurn, ávaxtaleifar

og fleiri lífræn efni í safnhauginn. Ef þú

gerir þetta þá minnkar rusJið hjá þér og

þú getur sparað þér að kaupa áburð sem

er alls ekki eins góður.

Umhverfisvernd í Þjón-

ustumiðstöð UMFÍ

Tímaritið Skinfaxi og Fréttabréf

UMFÍ eru prentuð á umhverfisvænan

pappír, sem uppfyllir strangar kröfur

sænskra umhverfisverndunarsamtaka

um að takmarka notkun klórefna í papp-

írsmassanum. Við kaupum endurunninn,

klórfrían og óbleiktan pappír til notkun-

ar á skrifstofunni og endurunninn hrein-

lætispappír til notkunar á salernum og í

eldhúsi. Söfnum notuðum pappír, dós-

um og flöskum og förum með í endur-

vinnslu. Ef fatnaður er skilinn eftir í

gistingunni förum við með hann til

Rauða kross íslands ef eigandi hans

finnst ekki. I einu horni garðsins er

kassi fyrir garðúrganginn og hann kem-

ur sér vel á vorin þegar borið er á.

Tökum öll höndum saman og

stuðlum að verndun umhverfis-

ins, það tekst ekki nema allir

hjálpist að.

Birgi Þórðarsyni hjá Hollustuvernd ríkisins

eru fœrðar þakkirfyrir aðstoðina.

Skinfaxi

37

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40