Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 4
www.islandaneiturlyfja.is Bturlyf eru c,S.*NO<* Samtaka / nú! hættuleg KAmBISEFNI Kannabisefni (maríjúana, hass og hassolía) safnast upp í heila og kynfærum og valda hröðum persónuleika- breytingum. Mjög lúmsk vímuefni. Hið vímugefandi efni er skammstafað THC. Það er ekki vatnsuppleysanlegt, heldur binst það fitjuvefjum líkamans, en fiturfkustu líffærin eru heili og kynfæri - eggjastokkar og eistu. Þar situr efnið löngu eftir að víman hefur fjarað út. 7-9 daga eftir neyslu er helmingur þess ennþá eftir í líkamanum. Þar sem fráhvarfseinkenni eru ekki jafn heiftarleg og margra annarra vímugjafa s.s. áfengis eða amfetamíns álíta margir neytendur að efniö sé tiltöiulega meinlaust, og neyta þess oftar fyrir bragðið. Afleiðingin er sú að efnið hleðst hratt upp í heilanum og mjög fljótlega má fara að greina breytingar á persónuleika neytandans. Viðkomandi einstaklingur verður sljór, latur, kærulaus og minnið þverr. Ahugamálin verða einskis verð, metnaður og geta í námi og starfi ásamt líkamlegri umhirðu víkja fyrir hirðuleysi. Einföldustu verkefni daglegs lífs vaxa mönnum í augum; engu líkara er en að persónuleikinn fletjist hreinlega út. í þessari grámygluveröld eiga örvandi efni á borð við kókaín og amfetamín greiða leið að neytandanum. Merki um kannabis nevslu: Hávært tal, hlátur í fyrstu. Neytendur verða slæptir á síðari stigum vímunnar Minnistap Augu eru blóðsprungin Lykt vegna reykinganna Vinnusemi og námsárangur minnkar Minna er hugsað um almennt hreinlæti Ofsóknarhugmyndir, og einvera Þunglynd og geðsveiflur, skortir áræðni. Brenglað tímaskyn Tæki og tól sem neytendur hafa meðferðis eru m.a. hasspípur (vatnspípur) vindlingapappír, o.þ.h. En hvað er það sem gerir þau svona hættuleg? Hér á síðunni getur þú fengið upplýsingar um hvaða áhrif einstök eiturlyf hafa á líkamsstarfsemina. Láttu ekki vanþekkingu koma í veg fyrir að þú getir orðið ættingja eða vini að liði. AMPETAMÍN & KÖKAÍN Amfetamín og kókaín eru efni sem hafa svipaða verkun. Þau virka örvandi á líkamsstarfsemi, hugsun og tilfinningar með tilheyrandi öfgum í framkomu og hegðun. Hreyfingar verða hraðar, vöðvar spenntir, augu uppglennt og auga- steinar stórir. Neytandinn verður ör, skapbráður, missir matarlyst og á erfitt með svefn. Eftir neyslu í nokkurn tíma fer að sjá mikið á útliti fólks, það horast og lítur sjúkega út. Fljótlega fer að bera á ranghugmyndum og geðveikiseinkennum á borð við ofsóknaræði. Við þetta bætist að efnin eru mjög vanabindandi og mörg hver dýr. Eina leiðin til að fjármagna neysluna er oft að fremja lögbrot á borð við innbrot og vopnuð rán. Mörg fólskuverk hafa verið framin vegna þessarar blöndu fíknar og geðveilu. Merki um amfetamín- og kókaínnevslu Víð sjáöldur Þurrkur í munni og nefi Andremma Stöðug væting vara Ofvirkni, getur ekki verið kyrr, Ahugaleysi á mat og svefni Skapgerðarsveiflur Þrasgirni Tilraunadýr taka kdkaín fram yfir fæðu og vatn og halda áfram að neyta þess þar til þau detta niður dauð... E-PILLA Lífshættulegar breytingar á líkamsstarfsemi. Virka vímugefandi efnið í E-pillunni er MDA, MDMA eða MDEA. Þetta eru amfetamínafbrigði með líka verkun og amfetamín og LSD. Ahrifin geta verið lífshættuleg þar sem þreytu-, hungur- og þorstatilfinning hverfur sem getur leitt til ofreynslu og vökvataps. Einnig er hætta á slæmum krampaflogum. Líkamshiti getur rokið upp úr öllu valdi, truflanir á blóðþrýstingi og/eða æðakerfi. Hætta er á varanlegum nýrnaskemmdum og heilablæðingum. Ofan á þetta bætast geðræn áhrif svo sem þunglyndi og ofsóknarkennd. LSD Ofskynjanir sem leitt geta til varanlegrar geðveiki. LSD veldur ofskynjunum - ofheyrnum og ofsjónum. Efnið blekkir öll skynfæri, tilfinningar hugsun. Alvarleg geðveikieinkenni eru skammt undan og verða í mörgum tilfellum varanleg. Merki um LSD nevslu: Víkkuð sjáöldur Hækkaður líkamshiti, sviti og svitalykt. Brenglað sjón- heyrnar- og snertiskyn. Brenglað tíma- og staðarskyn ...áhrifin af lsd geta sprottið upp án fyrirvara löngu eftir að efnisins er neytt...

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.