Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 30
Fullir 104 daga á ári - Hvernig stóö á því aö þú leiddist inn á sjónvarps- brautina? „Það var bara fyrir tilviljun. Sigurður Sigurðsson, íþrótta- fréttaritari á sjónvarpinu, veiktist og því þurfti að finna einhvern til að leysa hann af á meðan. Það gekk eitthvað erfiðlega að finna staðgengil en þar sem ég hafði hermt eftir honum sem skemmti- kraftur þá fengu þeir mig. Þetta var upphafið að mínum sjónvarps- ferli því í framhaldinu fékk ég fleiri verkefni sem undu upp á sig." - Þú ert fyrir löngu oröinn fastagestur á heimili lands- manna og sjónvarsáhorfendur hafa getaö fylgst meö hárunum fækka á höföi þínu. Stafar þessi hármissir af erfiðisvinnu? „Ja, þetta er mikil streituvinna og getur verið mjög erfið. Eg hef ekki haft tíma til að líta á klukkuna og athuga hvað tímanum liði í þau 30 ár sem ég hef starfað á sjónvarpinu. Það er sjaldgæft að vera í vinnu þar sem þú ert alltaf að keppa við tímann en ekki að bíða eftir að tíminn líði." - Þú hefur tekist á viö fjölbreytta hluti í sjónvarpinu. Er eitthvaö sem stendur upp úr? „Nei, ég er fyrst og fremst fréttamaður en hef einnig verið í dagskrárgerð, verið íþrótta- og veðurfréttamaður og stýrt spurningaþáttum þannig að ég er búinn að prófa flesta hluti. Eftir á að hyggja er dagskrárgerðin líklega skemmtilegust því maður getur eytt smá tíma og orku í hana án þess að þurfa að keyra allt í gegn." - Er skemmtilegt aö starfa í sjónvarpi? „Já, það segir sig sjálft, annars væri ég löngu hættur þessu. Maður hittir margt fólk og fæst við fjölbreytt viðfangsefni. Síðan er þetta starf miklu mikilvægara en menn gera sér grein fyrir en það er yfirleitt talað niðurlægjandi um þessa stétt sem ég tilheyri. Frumkvöðull hennar, og sá sem ruddi brautina fyrir fjölmiðlun og þau markmið sem hún felur í sér, var spurður að því rétt fyrir dauðann til hvers hann væri kominn. Þá sagðist hann vera kominn til að bera sannleikanum vitni og það var eina svarið sem Kristur gaf við réttarhaldið. Það er nákvæmlega þetta sem fjölmiðlun snýst um. Kristur var fjölmiðlamaður góður því hann náði að koma sínum málum á framfæri, eitthvað sem hinir náðu ekki að gera. Eg tel því Krist hafa verið brautryðjanda fjölmiðlunar og tel því að við, blaða- og fréttasnápar eins og við erum stundum kallaðir, eigum ákaflega göfuga fyrirmynd og upphafsmann." - Þú hefur haft tækifæri til aö kynnast mörgu fólki á þessum tíma en hefur þú einhvern tímann lent í fólki sem þykist þekkja þig og heilsar þér úti á götu en þú kannast alls ekki viö? „Já, það gerist nánast daglega að ég ræði við fólk sem ég get ekki munað hvað heitir. Því fleirum sem ég kynnist því færri nöfn man ég enda rennur þetta allt saman. Eg er því alltaf á varðbergi því stundum ræði ég við fólk sem ég á að þekkja en er búinn að gleyma hvað Ómar Ragnarsson er landskunnur enda hefur kappinn veriö fastagestur á sjónvarpsskjá landsmanna í rúm 30 ár. Þrátt fyrir mikið annríki í sjónvarpinu hefur hann haft tíma til að þreifa lítillega fyrir sér á öðrum hlutum. Hann er atvinnuflugmaður og þá hefur hann sungið inn á fjölda platna, verið skemmtikraftur í tæp 40 ár, skrifað bækur og tekið þátt í rallakstri svo fátt eitt sá nefnt. Omar hefur undanfarin ár fylgst vel með andanum í samfélaginu í gegnum fréttamennskuna. Skinfaxi fékk Omar til að segja frá sjónvarpssýkinni, boxinu og skyldudjammi íslendinga. heitir. Fólki finnst þetta stundum leiðinlegt og telur mig merkilegan með mig en það verður bara að hafa það því það er ómögulegt að muna eftir öllum sem ég hef kynnst." - Veröur þetta þá ekki oft á tíöum vandræöalegt? „Jú, en ég segi bara við fólkið að ég kannist við marga en þekki ekki neinn. Fólk tekur þessari útskýringu yfirleitt vel." - Þú hefur á undanförnum árum lýst boxinu meö Bubba kóngi á Sýn og þiö félagar fariö oft mikinn í útsend- ingunum. Gíriö þiö ykkur upp fyrir átökin? „Nei, við þurfum ekkert að gíra okkur upp. Það sem skiptir mestu máli er að vera búinn að afla sér nægra upplýsinga fyrir útsendingu. Að öðru leyti er þetta svipað og íþróttafrétta- mennskan var og því er eins og ég sé að ganga í barndóm. Eg hef lúmskt gaman af þessu því ég er gestur Bubba og því enginn ábyrgðarmaður og get því dottið í gamla íþrótta- fréttamannafarið."

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.