Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 12
SPOR UNGMENNAFELAGANNA Ungmennafélögin á íslandi hafa allt fró því snemma á síðustu öld tekið mikinn þátt í uppbyggingu félags- og íþróttaaðstöðu í sinni heimabyggð. Jón M. ívarsson , sagnfræðinemi, glímukóngur og ungmennafélagi vinnur nú að verkefninu Spor ungmenna- félaga. Jón sat fyrir svörum hjá Skinfaxa. Út á hvað gengur verkefnið? Það gengur út á að rekja spor ungmennafélaganna síðustu öldina! Reyndar er verkefnið að skrásetja verklegar framkvæmdir þeirra. Húsin sem þau byggðu sér, sundlaugarnar, íþróttavelli og skógræktarreiti fyrst og fremst. Hvernig miðar - hver er staðan í dag? Þetta er mikið verk og miklu meira en nokkur getur ímyndað sér. Nú er ég til dæmis búinn að fara yfir skýrslur ungmennafélaga til UMFI frá upphafi til ársins 2002. Þessar skýrslur eru nærri 14 þúsund talsins svo þetta er nú ekkert áhlaupaverk. Ur hverri einustu skýrslu koma upplýsingar um störf félaganna og allt er þetta skráð með vísun í heimildir svo hægt sé að staðfesta þær ef með þar. Sumt er náttúrlega glatað en mér sýnist að það verði hægt að ná mestum hluta sögunnar í hús. Hver eru næstu spor? Það er að halda áfram í heimilda- söfnuninni. Hafa svo samband við heimamenn í héraði og láta þá yfirfara heimildirnar og bæta við þar sem þeir vita betur. Svo er geysivel þegið ef einhverjir vita um sögulegar staðreyndir að þeir setji þær á blað og komi þeim til mín eða UMFI. Allavega að láta vita af þeim hingað. Hvernig komu ungmennafélagar helst að uppbyggingu í sinni heimabyggð? Ungmennafélög voru stofnuð í næstum hverri sveit á íslandi. Flest þeirra byggðu sér fundahús á sínum fyrstu árum snemma á 20. öld. Það var varla til svo fátækt félag að það byggði sér ekki þak yfir höfuðið. Þetta var bylting í félagsmálum Hreppslaug í Borgarfirði er dæmi um spor ungmermafélaganna, Spor ungmennafélaganna sveitanna á sínum tíma. Ótrúlega mörg þeirra byggðu sér sundlaugar, alls staðar þar sem heitar laugar var að finna og meira segja í köldu vatni. Þær voru hlaðnar úr torfi og grjóti fyrst og menn lærðu að synda í þessum torflaugum þó vatnið væri brúnt af mold! Upp úr 1930 fara sum félög að koma sér upp steyptum sundlaugum af ótrúlegum dugnaði og sumar voru meira að segja yfirbyggðar eins og t.d. sundskáli Svarfdæla í Eyjafirði og Umf. Reykhverfings í S-Þingeyjarsýslu. Fámennt félag á Reykjanesi við ísafjarðardjúp, Umf. Huld, lyfti grettistaki við byggingu sundlaugar þar og svona mætti lengi telja. Hvernig var staðið að uppbyggingu á aðstöðu? Þessi gömlu fundahús (þá var ekki búið að finna upp nafnið félagsheimili) voru undantekningar- laust byggð í sjálfboðavinnu ungmennafélaganna sem notuðu frítímann á kvöldin og sunnudagana til að vinna fyrir félagið sitt. Það voru fyrst og fremst ungmennafélögin í hverri sveit sem áttu frumkvæðið að þessum byggingum. Stundum voru kvenfélögin með í verkinu og oftast nær hreppsfélögin. Þó eru heilmörg dæmi um ungmennafélög sem byggðu húsins sín og fjármögnuðu þau ein og óstudd. Þau voru náttúrlega skuldug þegar húsin voru komin upp og þá voru dansleikir og íþróttamót helsta fjáröflunarleiðin. Bögglauppboð og hlutaveltur voru líka vinsæl og allt safnaði þetta í sjóð félaganna sem voru óþreytandi við þessi verkefni. Seinna þegar lögin um félagsheimili komu til, skömmu fyrir miðja 20. öld þá kom ríkið inn í fjármögnun húsanna. Þá voru menn líka farnir að byggja geysilega stór og vönduð hús og það er eiginlega ótrúlegt hvað lítil og meðalstór ungmennafélög hafa byggt glæsileg samkomuhús í sveitum landsins. Hefur þessi vinna - uppbygging á félagsaðstöðu, eitthvað breyst frá því sem áður var? Hún hefur gjörbreyst. Síðustu áratugina er það frekar undantekning ef ungmennafélög eiga stærsta hlutann í byggingu félagsheimila eða íþróttavalla, ég tala nú ekki um sundlaugar. Þetta hefur færst yfir til sveitarfélaganna sem eðlilegt er enda eru nú gerðar miklu meiri kröfur um hús og velli en áður var. I dag er ekki mikið um að ungmennafélögin standi fyrir fjár- frekum framkvæmdum. Frekar að þau beiti sér fyrir viðhaldi bygging- anna og umhirðu trjáreitanna. Það er líka heilmikið verkefni oft á tíðum og stundum meira en félögin ráða við. Nú er verið að sameina sveitarfélög um allt land. Margir litlir hreppar hafa slegið sér saman og líklega sameinast félögin í þessum hreppum smám saman í fram- haldinu. Þess vegna er nauðsynlegt að ná til sögunnar meðan þessi félög eru í fullu fjöri. Það er ekki eftir neinu að bíða. UMFÍ - Ræktun lýðs og lands 12

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.