Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 30

Skinfaxi - 01.08.2008, Blaðsíða 30
Páli G. Björnssyni, söguritara, þakkað fyrir ritun á sögu Ungmennafélagsins Heklu, en Páll gaf alla vinnu sína við verkið. Hér er Páll til hægri ásamt syni sínum Ragnari Pálssyni, formanni Umf. Heklu. Ungmennafélagið Hekla 100 ára Ungmennafélagið Hekla hélt upp á 100 ára afmæli sitt með glæsilegri hátíð á sjálfan afmælisdaginn, laugardaginn 26. júlí 2008. Ágætt veður var þann dag og fór hátíðin fram bæði á íþróttavelli og í íþróttahúsi á Hellu. Fjöldi gesta á hátíðinni var um 250. Dagskráin hófst kl. 13 á fjölskyldutugþraut og kynningum á frjálsíþróttagreinum á íþróttavelli. Gestir færðu sig síðan inn í íþróttahúsið og skoðuðu sýningu sem sett var upp í tilefni af 100 ára afmælinu. Á sýn- ingunni var saga Umf. Heklu rakin í máli og myndum og sýndir ýmsir gamlir munir í eigu félagsins, búningar o.fl. Formleg dagskrá á sviði hófst kl. 15:30 en áður höfðu gestir gætt sér á veitingum, glæsilegri afmælis- tertu og fleiri kræsingum. Formaður Umf. Heklu hélt ávarp og afhjúpaði nýjan hátíðarfána félagsins ásamt Gunnari Finnssyni, dóttursyni fyrsta formanns Heklu. Glerverksmiðjan Samverk gaf félag- inu fánann ásamt fánastöng. Þær Hrafndís Brá Heimisdóttir, Björg Hákonardóttir og Steina Guðbjörg Tómasdóttir fluttu tónlist- aratriði. Páli G. Björnssyni var færður blóm- vöndur sem þakklætisvottur fýrir hans miklu vinnu við bókina Ungmennafélagið Hekla 100 ára sem kom út rétt fyrir afmælið. Páll vann að bókinni allan s.l. vetur og fram á sumar án þess að taka neitt fyrir. Séra Guð- björg Arnardóttir las úr bókinni. Ávörp fluttu Gísli Páll Pálsson, formaður HSK, Fjóla Guðnadóttir, formaður íþrótta- og æskulýðsráðs Rangárþings ytra, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður Ung- mennafélags Islands, Jón Jónsson, stjórnar- maður í Umf. Heklu, Benoný Jónsson, for- maður Iþróttafélagsins Dímonar, Ragnheið- ur Skúladóttir, formaður Kvenfélagsins Unnar, og Bjarni Harðarson, alþingismaður. Gisli Páll færði félaginu að gjöf HSK-bikar og gestabók merkta Umf. Heklu. Helga Fjóla kallaði til sín Örn Þórðarson, sveitarstjóra Rangárþings ytra, og afhenti hann félaginu blómvönd og færði félaginu hamingjuóskir. Helga Guðrún færði félaginu þakkarskjöld frá UMFl. Jón færði þakkir öllum þeim sem hjálpuðu til við framkvæmd hátíðarinnar og uppsetningu sýningarinnar. Benoný færði félaginu 50.000 kr. peningagjöf til áhaldakaupa. Ragnheiður færði félaginu 50.000 kr. peningagjöf. Bjarni óskaði félaginu velfarnaðar. Afhent voru verðlaun fyrir fjölskyldu- tugþraut og dregið úr lausnum í getraun- um. Formaður þakkaði öllum þeim einstakl- ingum og fyrirtækjum sem lögðu félaginu lið til að hátíðin gæti orðið að veruleika. Umf. Hekla þakkar öllum þeim sem heiðruðu félagið með nærveru sinni þenn- an dag og einnig allar þær góðu gjafir sem félaginu bárust í tilefni afmælisins. Þrírformenn: Gísli Páll Pálsson, formaður HSK, Helga G. Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, og Ragnar Pálsson, formaður Umf. Heklu. Vinstra megin: Björg Hákonardótt- ir, Áslaug Einars- dóttir og Guðrún Anna Hákonardótt- ir. Hægra megin: Steina Guðbjörg Tómasdóttir, Hrafn- dís Brá Heimis- dóttir, Hulda Sóley Ómarsdóttir og Valdís Bjarnadóttir. 30 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands J

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.