Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Blaðsíða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Blaðsíða 5
LOFTSKEYTAÞJONUSTAN 60 ARA ítalski hugvitsmaðurinn Gugii elmo Marconi mun með réttu talinn „faðir“ loftskeytanna, enda þótt margir aðrir hugvits- menn, svo sem James Maxwell, Faraday. Hertz og Crookes hafi rutt honum braut með tilraunum sínum og athugunum á rafsegul- sveiflunum. Tilraunum Marconís var í upphafi beint að sjónum, og honum virðist hafa verið Ijós þýðing þess að rjúfa hina eilífu þögn, sem ríkt hafði á auðnum úthafanna. Þá mun hann fljótt hafa rennt grun í þá óhemju viðskiptamöguleika, sem mundu skapast við fjarviðskipti. Árið 1900 var svo breska Marconí- felagið stofnað og á það nú 60 ára afmæli, sem elsta félag í heimi, sem framleiðir loftskeyta- tæki. Þá eru einnig 60 ár liðin frá því, er fyrsta verzlunarskipið var út- búið loftskeytatækjum, en það var þýzka skipið Wilhelm der Grosse, en það var í marz árið 1900, áður höfðu stöðvar ver- ið settar um borð í nokkur her- skip í tilraunaskyni. Upp úr aldamótunum jókst notkun loftskeytanna hröðum skrefum, enda myndaðist fljótt æðisgengin samkeppni milli Marconífélagsins og aðallega amerískra framleiðenda. Leið ekki á löngu áður en hin stærri skipafélög komu auga á hina geysilegu þýðingu, sem fjarskiptin höfðu, við að halda uppi sambandi milli farþega hinna stóru úthafsskipa og lands, og ekki sízt sem öryggis- tækja á hafinu, enda varð skammt að bíða eftir því að staðreyndirnar sönnuðu ágæti þeirra. Fyrstu loftskeytamennirnir, sem telja má að hafi í upphafi lagt grundvöllinn að framtíðar- skyldum loftskeytamanna á hafi úti, hafa eflaust verið þeir Jack VÍKINGUR Binns og Philips. Þessir tveir menn, voru í rauninni ungir símritarar í landi og harla ó- kunnugir sjómannslífinu og hin- um hörðu kröfum þess. í þeirra tíð voru engar reglur til um hvernig þeir ættu að haga sér þegar hættu bæri að hönd- um, en þó munu þessir ungling- ar um tvítugt hafa með fordæmi sínu skapað þá óskráðu erfða- venju, að skylda loftskeyta- mannsins næði jafnlangt og not- hæfni tækjanna, og á meðan þau yrðu starfrækt væri staður loft- skeytamannsins við „lykilinn“, hvernig sem á stóð annarsstað- ar á skipinu. Það var því ekki fyrr en tækin voru þögnuð, að hann mátti hugsa um að bjarga sjálfum sér meðan nokkur mað- ur var í hættu. . Af sömu sökum munu margir loftskeytamenn hafa dvalizt svo lengi á verði, að þeir hafa orðið of seinir að bjarga sér. Þá hefur sá misskilningur stundum verið ríkjandi að loftskeytamanninum beri skylda til að fylgja skip- stjóra sínum til hinztu stundar og farast með skipinu ef svo ber undir. Þetta er vitanlega fjar- stæða. Starf loftskeytamannsins er viðskiptalegs eðlis og því er lokið um leið og loftskeytatækin eru orðin ónothæf. Eftir það ber honum auðvitað að leita sér björgunar eins og öðrum af á- höfninni. Nokkur dæmi eru til við sjó- slys, að loftskeytamaður hafi haldið áfram starfi sínu þvert ofan í fyrirmæli skipstjórans um að yfirgefa skipið og jafnvel látið lífið af þeim ástæðum, öðr- um hefur tekizt að bjarga sér á síðustu stundu. Hér á eftir verður sagt frá nokkrum sjóslysum. þar sem loftskeytamennirnir hafa átt ó- metanlegan þátt í björgun skipa og mannslífa. Verður hér aðeins stiklað á mjög stóru, því að af miklu er að taka. Myndu slíkar frásagnir fylla mörg bókabindi. Re'public. Það eru nú 50 ár liðin frá því er skemmtiferðaskip White-Star línunnar Republic, 15 þús. brto smál. sökk eftir árekstur við ítalska skipið FLORIDA, sem var 10.000 tonn nálægt austur- strönd Bandaríkjanna. Repu- blic kom frá New York og var með 450 farþega og var á leið á 141

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.