Alþingi: Tillaga um mótun fjölskyldustefnu Sex alþingismenn hafa lagt fram á Alþingi þingsálykt- unartillögu um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar. Tillagan er nú hjá félagsmálanefnd Alþingis. Það er mikið sem liggur fyrir hjá nefndinni og óvíst hvenær nefndin afgreiðir málið frá sér," sagði Siv Frið- leifsdóttir, varaformaður nefndarinnar. Þegar hún var spurð hvort tillit yrði tekið til bréfs Farmanna- og fiski- mannasambandsins (sjá annars staðar á opnunni) sagði hún of snemmt að segja til um það. Rannveig Guðmundsdóttir, sem var fyrsti flutnings- maður tillögunnar, sagði hins vegar að sér þætti eðlilegt að kalla sjómenn til, svo þingmenn gætu ráðfært sig við þá og heyrt skoðanir þeirra. NOKKUR DÆMI Þegar tillagan er lesin er ekki hægt annað en hnjóta um nokkur atriði sem erfitt verður að framkvæma með þeim hætti að sjómenn og fjölskyldur þeirra sitji við sama borð og aðrir. Tökum nokkur orðrétt dæmi úr þingsályktunartillögunni: Að velferð fjölskyldunnar byggist á jafnrétti kvenna og karla og sameiginlegri ábyrgð á verkaskiptingu innan hennar. Að sköpuð séu skilyrði til þess að ná jafnvægi milli atvinnu foreldra og fjölskyldulífs, einkum með tilliti til ábyrgðar og umönnunar barna. Að lögð sé aukin áhersla á ábyrgð feðra í umönnun og uppeldi barna sinna." FRAMTAK, Hafnarfirði Kraftmíkil og lipur viðgerðarþjónusta nú einnig dísilstillingar FRAMTAK - alhliða viðgerðarþjónusta: __________ VÉLAVIÐGERÐIR __________ RENNISMÍÐI __________ PLÖTUSMÍÐI BOGI DÍSILSTILLINGAR Viðurkennd MAK Þjónusta. FRAMTAK cóðþjóhusta vÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA VECUR ÞUN6T Drangahrauni Ib Hafnarfirði Sími 565 2556 Fax 565 2956 ^? SJÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR 13