LIFTRYGGING 7EGUVERDI Filippeyskir sjómenn eru að fá launahækkun. ^GEIRIP Skeifunni 1 3 sími 588 7660 fax 581 4775 Launahækkanir hjá Flippunum Þann 27. nóvember voru samþykktar launahækkanir hjá rúmlega 9.000 filippeysk- um sjómönnum sem sigla á erlendum þægindafánum. Þó líður rúmlega ár þar til þær taka gildi en það verður 1. janúar 1998 og gilda til alda- móta. Með þessum samningi mun fullgildur háseti fá tæpar 36.000 kr ($ 535) en það er hækkun upp á rétt tæpar 1.500 kr. en þeir hafa í dag 34.500 kr. ($515). Yfirstýri- maður mun hækka úr 75.900 kr. ($1133) í 79.400 kr.($ 1186). Þessu til viðbótar eiga launagreiðendur að borga 670 kr. ($10)ámánuðifyrir hvern áhafnarmeðlim í nám- skeiðsstjóð. Heimta kaupið sitt Tuttugu og sex skipverjar á rækjutogaranum Sheduva neituðu að fara frá Harbour Grace á Nýfundnalandi í byrj- un október sl. þar sem þeir höfðu ekki fengið nein laun um langan tíma. Töldu þeir sig eiga ógreidd laun hjá útgerðinni upp á rúmar þrjár milljónir króna. Togarinn var búinn að vera sex mánuði á sjó þegar hann kom til hafnar í Harbour Grace og voru þá allar matarbirgðir á þrotum. Tvöföld sjósetning Um miðjan september var tveimur skipum hleypt sam- tímis af stokkunum hjá Dalian New Shipyard í Kína. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem slíkur atburður gerist þar í landi og skipin voru heldur engin smásmíði því hvort þeirra var 52.000 tonn að stærð. Skipin eru fyrstu tvö skipin af fimm sem verið er að smíða fyrir breska fyrir- tækið Gearbulk hjá skipa- smíðastöðinni. 16 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR