Bjarni Sveinsson skipstjóri, stjórnarmaður í Lífeyrissjóði sjómanna, skrifar C^ Vegna skrifa Sigrúnar B. Ólafsdóttur undir framangreindri fyrirsögn í síðasta tölublaði Víkingsins er nauðsynlegt að gera réttari grein fyrir hvernig lífeyrismálum okkar sjómanna er raunverulega háttað. Það getur ekki verið Sigrúnu, sjómanninum hennar né öðrum sjómönnum til góðs að vera uppfullir af ranghugmyndum um þessi mál. Nánast allir Iaunþegar þessa lands eru skyldaðir til að greiða í lífeyrissjóði, það er sameignarsjóði, sambærilega við LS. f lang- flestum tilvikum ber að greiða í ákveðinn sjóð bundið starfsgrein. 65-67% sjómanna \ greiða í LS, hinir greiða í landshlutasjóði t.d. I Líf. Vestfirðinga, Austurlands og Vest- mannaeyja. Það er því rangt að allir sjómenn séu skyldaðir til að greiða í LS. En sjómönn- um ber að greiða í sameignasjóði eins og öðrum launamönnum. Eftirfarandi setning er úr grein Sigrúnar: Hafa ber margt í huga þegar ellilífeyrir er annars vegar. Það þarf að hugsa um hvað verður um eiginkonu og börn ef viðkomandi fellur frá, hvort fjölskyldan geti lifað á þeim ellilífeyri sem henni er ætlaður og svo framvegis." Tilvitnun lýkur. Bruðlum ekki með fé Ellilífeyrir er eingöngu ætlaður öldruðum, það er þeim sjóðfélögum sem ná 60 eða 65 ára aldri eftir atvikum. Eiginkona og börn fá því ekki ellilífeyri. Aftur á móti greiðir sjóð- urinn makalífeyri og barnalífeyri í tilviki eins og því sem Sigrún nefnir og geta þær bætur orðið verulegar, jafnvel svo að mun meira er greitt til fjölskyldunnar en maðurinn horfni ásamt vinnuveitanda sínum höfðu náð að sjomanna greiða til sjóðsins. Sigrún telur að margir hafi af því áhyggj- ur hversu mikið komi til baka af því sem gre- itt er. Hún telur mikið bruðl vera hjá sjóðunum. Gott dæmi um það sé að lána 90 millj. til flugfélags. Ég fullyrði að það er ekki bruðlað með fé hjá LS og hjá okkur sem og langflestum sjóðum er unnið eftir ströngum reglum um ábyrgðir fyrir lánum. Enda er það svo að útlánatöp okkar sjóðs eru sáralítil og það litla sem er er aðallega vegna lána til sjóðfélaga (sjómanna). Státum af lágum rekstrarkostnaði Allt það fé sem inn í sjóðinn kemur mun með vöxtum fara út úr honum aftur í formi lífeyris. Það er öruggt því það er enginn milliliður af neinu tagi sem hagnast á rekstri sjóðsins. Við sjómenn og útgerðir í landinu eigum og rekum þennan sjóð. 3 fulltrúar sjó- manna og 3 fulltrúar útgerða sitja saman í stjórn. Helstu verkefni hennar eru nákvæm- lega það að gæta þess að ekki sé bruðlað" með fé eins og Sigrún kallar það, sjóðurinn sé á hverjum tíma í öruggri og góðri ávöxtun og að jafnræði sé með höfuðstól+ókominn iðgjöld+vextir og svo þeim lífeyri sem lofað er samkvæmt reglugerð sjóðsins. LS getur stá- tað af Iágum rekstrarkostnaði og góðri ávöx- tun og við lofum betri lífeyri en flestir aðrir sjóðir. Það býður t.d. enginn annar sjálfbær sjóður upp á almennan ellilífeyrisrétt 65 ára og þeim sem hafa haft sjómennsku að ævis- tarfi að hefja töku 60 ára. Ef eitthvað er að hjá okkur sem berum ábyrgð á LS þá er það að við séum hugsanlega að bjóða betri réttin- di en við ráðum við að mati trygginga- fræðinga og Seðlabanka sem hafa eftirlit með rekstri lífeyrissjóða. En ég er bjartsýnn á að okkur takist að ná 4% ávöxtun á sjóðinn því með því getum við staðið við allar okkar skuldbindingar. Allianz er rekinn í ábataskyni Nú er ég kominn þar í grein Sigrúnar þar sem hún tekur að sér að veita sjómönnum betri innsýn í lífeyrismálin. Það gerir hún með því að bera saman Lífeyrissjóð sjómanna og eftirlaunasjóð Allianz, svo ólíkir sjóðir sem það eru. Allianz er rekinn í ábataskyni og út úr honum getur enginn fengið meir en það sem viðkomandi hafði greitt plús vextir, að frádregnum rekstrarkostnaði og einhverjum arði til hluthafa. Eigum við að skoða dæmi. Sömu forsend- ur eru notaðar og Sigrún notar í sínum dæmum. Maðurinn hefur greiðslu 30 ára, árslaun eru 3,5 milljónir og hefur greitt í sjóðinn í 10 ár. Fellur frá og lætur eftir sig ekkju og 3 börn, 6, 10 og 14 ára. Ekkjan verður 85 ára og gengur ekki í hjónaband né sambúð að nýju. Mánaðarlegur makalífeyrir verður kr. 72.366,00 og barnalífeyrir kr. 5.397,00 med hverju barni eða samtals kr. 88.557,00 á meðan öll börnin eru 18 ára og yngri. Heildargreiðsla yrði kr. 40.631.976,00 já þú ert að lesa þetta rétt, rúmar fjörutíu miljónir. Inneign ekkjunar í Allianz hefði í þessu tilviki verið kr. 4.613.000,00. Á mæltu máli fjórar milljónir og sexhundruð þúsund. Og það erfist. Annað dæmi: Sami maður lifir af en verður 100% öryrki. Þá lítur dæmið þannig út. Örorkubætur kr. 136.690,00 á mánuði plús barnalífeyrir kr. 5.397,00 með hverju barni 18 ára og yngra. Heildarörorkulífeyris- 22 Sjómannablaðið Víkingur