Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Sjómannablašiš Vķkingur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Sjómannablašiš Vķkingur

						Þór Elísson skipstjóri kóminn í land eftir 44 ár hjá Eimskip

I júlí síðastliðnum stýrði ÞÓR ElÍSSON skipi

sínu í síðasta sinn inn í Reykjavíkurhöfn. Þá

hafði hann verið sjómaður hjá Eimskipafélag-

inu samfellt í 44 ár, lengst af stýrimaður og

skipstjóri. Hann segir að það hafi verið skrítin

tilfinning að koma til erlendra hafha í síðasta

sinn en það hafi verið það eina sem hann hafi

hugsað um starfslokin. Þau hafi verið óumflý-

janleg hvort sem er, þótt þau hafi orðið sex

mánuðum fyrr en hann hafði ákveðið.

Astæðan var að Eimskipafélagið setti skip hans,

Brúarfoss, í leigu um mitt árið. Brúarfoss þessi

er stærsta skip sem Eimskipafélagið hefur átt,

173 metra metra langt og 20 metra breitt, en

siglir undir nafninu Vega núna.

„Það tók því ekki að söðla um á nýtt skip

fyrir svona stuttan tíma," segir Þór þegar

hann er spurður um snögg starfslok.

Þór er fæddur 2. desember 1929 að Búð-

um í Fáskrúðsfirði og er Austfirðingur aftur í

ættir. Fram til fjórtán ára aldurs ólst Þór upp

á Fáskrúðsfirði en þá flutti hann með foreldr-

um sínum til Reykjavíkur, þar sem faðir hans

fékk atvinnu. Faðirinn hafði fram að því

verið til sjós en gripið í smíðar af og til og

fékk tilboð um að læra húsasmíðar í Reykja-

vík á fullum launum.

HUGURINN STÓÐ EKKI TIL NÁMS

Þegar Þór kom til Reykjavíkur gerðist

hann landmaður á vertíð og bjó í gömlu ver-

búðunum.

„Eg reri aldrei fyrir austan en vann við sjó,

í fiskvinnslu, við beitningu og aðgerð frá

unga aldri. Hugur minn stóð ekki til náms,

því sjö ára hafði ég ákveðið að gerast sjó-

maður. Móðir mín lagðist mjög sterkt gegn

því og vildi að ég lærði eitthvað. Ég gerði

samkomulag við hana um að ég færi fyrir

hana í gagnfræðaskólann og kláraði hann

með því skilyrði að hún skipti sér ekki af mér

eftir það. Þetta samkomulag okkar hélt og ég

lauk gagnfræðaprófi frá Ingimarsskóla sem

þá var til húsa í nýju húsi Sjómannaskólans.

Ég segi stundum að ég hafi Iokið stú-

dentsprófi úr Stýrimannaskólanum því ég

var þar í fimm vetur í allt," segir Þór og hlær.

Sumarvinna Þórs var á sjónum og hann byr-

jaði á togaranum Skutli, sem upphaflega var

gerður út frá fsafirði, en síðar frá Reykjavík.

Síðar var Þór á Belgaum og Fylki.

ElNN AF SEX HÁSETUM

MEÐ STÝRIMANNARÉTTINDI

Þór gerði rétt í því að fara eftir ráðlegging-

um móður sinnar því með gagnfræðaprófið

gat hann sleppt fyrsta bekknum í Stýri-

mannaskólanum. Þór segir að þegar hann var

ungur þótti það vænlegur kostur fyrir unga

menn hafi þótt að læra til stýrimanns. Á hans

námstíma voru þrír bekkir að læra til fiski-

manns og tveir bekkir í farmanninum. í vet-

ur er til að mynda enginn nemandi í þriðja

stigi í Stýrimannaskólanum.

Fiskimannaprófið tók Þór um vorið 1952

og um haustið réð hann sig til Eimskipa-

félagsins til að vinna sér inn tíma til að kom-

ast í farmanninn. Vorið 1954 lauk hann far-

manninum. Á þessum árum voru margir

réttindamenn að bíða eftir stýrimanns-

stöðum á skipunum og um tíma var Þór einn

af sex hásetum með stýrimannsréttindi um

borð í Gullfossi. Þríburarnir svokölluðu voru

komnir í rekstur, Dettifoss, Goðafoss og Lax-

foss, ásamt Gullfossi. Eldri skip duttu úr

rekstri þannig að fjölgun varð ekki í flotan-

um. Hafin var smíði á Tungufossi og

Fjallfossi '53 og '54. 1958 bætast svo aðrir

Fossar við og þá komst hreyfing á mannskap-

inn.

Þór byrjar fyrst í afleysingum af alvöru sem

þriðji stýrimaður árið 1959, þá á Fjallfossi.

„Eftir að ég fór að leysa af varð ég aldrei háseti

aftur. Það æxlaðist þannig að eftir fyrsta árið

var ég farinn að leysa af í næstu stöðum fyrir

ofan sem 2. og 1. stýrimaður. Á fjórtán ára

tímabili var ég á þremur skipum, Gullfossi,

Fjallfossi og Selfossi, fram til ársins 1969.

Þaðan fer ég á Gullfoss aftur, þá sem 1. stýri-

maður, og var á honum þar til hann var seld-

ur 1973."

Á FLAKK EFTIR AÐ GULLFOSS VAR SELDUR

Mikil rómantík hefur alltaf verið um þetta

flaggskip íslendinga „Gullfoss með glæstum

brag." Þór segir að það hafi alltaf verið gott að

30

Sjómannablaðið Víkingur

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80