Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1996, Blaðsíða 50
Stuðningur á Alþingi? Ljóst er að sjómanna býður hörð barátta í komandi kjarasamningaviðræðum. Þegar hefur komið fram að helstu baráttumál fiski- manna verður að koma í veg fyrir kvóta- braskið og að allur fiskur verði seldur á mörk- uðum. Sjómannablaðið Víkingur leitaði til þriggja þingmanna um afstöðu þeirra til þess- ara helstu baráttumála og hvort þeir teldu möguleika á að lausn fáist á þeim án afskipta Alþingis. Eins og lesa má úr svörum þingmanna þriggja, Steingríms J. Sigfússonar, Hjálmars Árnasonar og Össurar Skarphéðinssonar, sést að þeir allir taka undir kröfiir sjómanna. Það virðist sem sjómenn eigi fleiri bandamenn meðal stjórnmálamanna, en áður. Eins og sjómönnum er kunnugt hafa þing- mennirnir Guðjón Guðmundsson og Guð- undur Hallvarðsson lagt fram frumvarp á Alþingi, þar sem gert er ráð fyrir miklum tak- mörkunum á framsalinu. Það verður for- vitnilegt að sjá hver afgreiðsla þess verður. Hér í blaðinu er frétt um tillögu sem þing- menn jafnaðarmanna hafa lagt fram um að allur fiskur verði seldur á markaði, og hluti greinagerðar þingmannanna er birtur í blað- inu. Þá er framar í blaðinu fjallað um þings- ályktunartillögu þar sem gert er ráð fyrir að nefnd verði skipuð til að athuga aðbúnað um borð í skipum. Af þessu má sjá að sjómenn eru ofarlega í huga þingmanna. Við fylgjumst með hvað úr verður, sjáum hvort stuðningurinn er raunverulegur eða ekki. Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður um kvótabraskið: „Sjómenn fara ekki aftur á sjó nema með lausn sem þeir telja varanlega“ „Það hafa komið fram frumvörp á Alþingi sem taka á þessum málum. Ég held að það verði ekki tekið á kvótabraskinu öðruvísi en það varði lögin sjálf,“ sagði SteingríMUR J. Sigfússon, alþingismaður fyrir Alþýðu- bandalagið og formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, þegar hann var spurður hvort hann sæi fram á að sjómenn og útgerðarmenn leystu kvótabrasksdeilurnar án afskipta lög- gjafans. Steingrímur sagðist helst sjá að taka yrði á framsalinu eða nýtingarprósentunni. „Það er líklegt að þetta komi fyrir Alþingi, en væntanlega ekki fyrr en eftir áramót. Von- andi verður þar niðurstaða úr samkomulagi milli sjómanna og útgerðar.“ Mér pykir sem það sé aukinn skilningur meðal þingmanna; það er komið fram frum- varp sem gengur út á að banna framsal að miklu leyti og þingsályktunartillaga um allan fisk á markað, er þetta þinn skilningur líka? „Ég held að umræðan sé að fara í ákveðnari farveg en áður. I staðinn fyrir að tvístruð and- staða sé við kvótakerfið hafa sjónir manna beinst meira að framsalinu og þá sérstaklega leiguframsalinu. Ég hef talað fyrir því lengi að menn einbeittu sér að þessum þætti, ieiguframsalinu, en það er mesta óréttlætið að menn geti fénýtt þetta ár aftir ár án þess að veiða sjálfir. Ég fagna því að fleiri og fleiri eru farnir að einbeita sér að þessum þætti í staðinn fyrir að áður var þetta dreifð andstaða gegn kerfinu sjálfu. Ég tel að þegar menn horfa ákveðið á leiguþáttinn séu þeir að gefa sér að afla- markskerfið verði áfram. Þetta er til marks um að málið er að fara í fastari farveg og það er von mín að menn nái sáttum.“ Er þá ekki hœgt að segja að þeir sem eru stuðningsmenn aflamarksins verði að taka á braskinu til að verja kerfið? Málsvörum þess hlýtur aðfiekka verði ekkert að gert til að stöð- va óréttlatið? „Aðalhættan er sú að almenn óánægja safnist saman í breiðan farveg og það sem ég tel vera mestu hættuna er að niðurstaðan yrði sú að auðlindaskattur yrði talinn eina lausnin og fyrir misskilning yrði honum skellt á. Ég hef sagt við útgerðarmenn að það geti vel orðið útkoman ef þeir ekki skynja sína stöðu í málinu og sýna sveigjanleika. Annars getur kerfið hrunið, eða guð má vita hvað gerist. Ég er tvímælalaust - og hef lengi verið varðandi þessi vandamál sem stinga i augu - á því að á þessu eigi að taka og þó fyrr hefði verið. Þá má ekki undanskilja úrkastið, en það veldur mikilli óánægju og særir fólk og líka sjómen- nina sjálfa, og við vitum að það á sér stað. Ég sé fyrir mér afnám leiguframsalsins, að leyfa eingöngu varanlegt framsal með ákveðnum reglum og útfæra meðaflareglu. Með þessum hætti mætti stórbæta átandið og gera menn sáttari. Eins kemur til greina að vera með aðra stjórn fyrir grunnslóðina. Það verður gaman að sjá hvað gerist í vetur. Ég held að ef deila sjómanna og útgerðarmanna fer í hart verði það lokastyr- jöld um þetta mál. Það þarf enginn að segja mér að sjómenn fari í þriðja verkfallið í röð án þess að ætla sér að ná varanlegri niður- stöðu. Ef þeir fara í land vegna þessa þá fara þeir ekki á sjó aftur fyrr en komin er niðurstaða sem þeir treysta að haldi, ég held að það sé borðleggjandi.“ 50 Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.