Næg verkefni voru hjá Skipavík hf. í Stykkishólmi frá áramótum til loka október, en rólegt var í nóvember. Á síð- astliðnu sumri var lokið um- fangsmiklum breytingum á rækjuskipinu Þóri SK 16 frá Sauðárkróki. Þórir var breikk- aður um 80 sentimetra, lengd- ur um 50 sentimetra, þilfarinu var lyft að hluta og breytingar gerðar á toggálga og stað- setningu spilbúnaðar. Farsæll SH 30, rækjutogari úr Grundarfirði, var til viðgerða í haust og var skipið vatnsblásið" og heilmálað, einnig gerðar ýmsar breytingar í tengslum við skelveiðar. Nú stendur yfir skelvertíð á Breiðafirði og voru mikil verkefni hjá Skipavík seinni hluta sumars og í haust við að búa heimabáta til þeirra veiða. Veiðar á beitukóngi hófust frá Stykkishólmi nú í haust og hafa skapast verkefni vegna þróunar og smíði búnaðar til veiða og vinnslu á beitukóngi, en hann er veiddur í gildrur. Eðlilega hefur Skipavík sett mark sitt á atvinnulífið í Stykk- ishólmi, en Skipavík verður þrjátíu ára á næsta ári. Á fyrstu starfsárum fyrirtækisins voru smíðuð nær 20 tréskip, en ekki hefur verið farið í nýsmíði stál- skipa til þessa. Ýmis breyt- ingaverkefni, viðgerðir og þjónusta við skip og báta hafa verið undirstaða starfseminnar og helgast það af því að ágæt aðstaða er til að taka skip inn í hús. Hægt er að taka tvö 27 metra löng skip inn og á sama tíma þjónusta tvö önnur 35 metra löng skip utanhúss. Skipavik hefur sérhæft sig í búnaði til veiða og vinnslu á hörpuskel og í seinni tíð einnig varðandi ígulker og beitukóng. Skipavík tók þátt í Sjávarút- vegssýningunni í haust og var árangurinn framar vonum. Skipavík hefur umboð fyrir danska skipstjórastóla og sel- dust nokkrir á sýningunni. Sveiflur í verkefnaframboði eru nú sem fyrr stærsta vanda- málið í rekstrinum og vantaði menn tilfinnanlega síðastliðið sumar, en nú er rétt nóg að gera fyrir starfslið fyrirtækisins, sem er tuttugu og tveir þessa stundina. Auk þess sem að framan greinir rekur Skipavík byggingarvöruverslun í Stykk- ishólmi og er þar útibú fyrir ÁTVR, sem rekið er í samstarfi við áfengisverslunina. V uil.llH'Hiinn ÍKIM3UR SIMI 562 9933 AUGLÝSINGAR 587 4647 RITSTJÓRI 853 5049 Utbúum lyfjakistur fyrir skip og báta. Eigum ávallt tilbúin lyfjaskrín fyrirvinnustaði, bifreiðir og heimili. INGÓLFS APOTEK Almennur sími 568 9970 Beinarlínurfyrirlækna 568 9935 SJÓMANNABLAÐIÐ VlKINGUR 75