Skipstjórar og stýrimenn á farskipum sameinast í eitt félag Mun skynsamlegar fyrir okkur að starfa saman - segir Kristján Sveinsson formaður Skipstjóra- og stýrimannafélags íslands Það er búið að vera nokkuð lengi á döfinni að sameina fé- lögin og ein 12 ár síðan fyrst var farið að ræða sameiningu. Það var þó ekki fyrr en fyrir tveimur árum sem það komst skriður á málið. Þá var sam- þykkt í báðum félögunum að reyna þetta og af formlegri sameiningu varð þann 31. maí síðast liðinn," sagði Kristján Sveinsson formaður Skip- stjóra- og stýrimannafélags ís- lands í samtali við blaðið. Það þótti tíðindum sæta þegar tvö gömul og rótgróin stéttarfélög sjómanna voru sameinuð í eitt með samein- ingu Stýrimannafélags l'slands og Skipstjórafélags íslands. Hartnær 80 ár voru þá liðin frá stofnun Stýrimannafélagsins og liðlega 60 ár frá því Skipstjóra- félagið var stofnað. Kristján segir einfalda ástæðu liggja að baki sameiningarinn- ar: Þaðhefurorðið svo mikil fækkun í far- mannastéttinni að það er mun skynsamlega fyrir skipstjóra og stýrimenn að starfa saman í einu félagi. Héðan voru gerð út um 60 kaupskip og varðskip fyrr á árum en þau eru ekki nema um 20 í dag. Auk þess hefur fækkað í áhöfn. Áður voru flest skip með þrjá stýrimenn um borð en núna bara með tvo. Þessar stéttir eiga mjög margt sameiginlegt en það er ekkert sem stíar þeim í sundur. Á öðr- um Norðurlöndum sameinuð- ust þessi félög fyrir nokkuð mörgum árum. Við vorum því orðnir á eftir tímanum og sam- einingin var samþykkt með yfir- Helga Jakobsdóttir og Kristján Sveinsson. gnæfandi meirihluta í báðum félögunum," sagði Kristján. Skrifstofa Skipstjórar- og stýrimannafélagsins er að Borgartúni 18 þar sem félögin voru áður með skrifstofur. Starfsmenn félagsins eru Guð- laugur Gíslason, sem var fram- kvæmdastjóri Stýrimannafé- lagsins og Helga Jakobsdóttir sem fór fyrir skrifstofu Skip- stjórafélagsins. Efnt hefur verið til samkeppni um gerð merkis fyrir Skipstjóra- og stýrimannafélagið. Við sameininguna voru félagsmenn beggja fé- Iagannasamtals316 talsins. Af þeim eru hins vegar ekki starfandi nema 136 skipstjórar og stýrimenn á kaupskip- um, ferjum og varðskip- um, að sögn Kristjáns. Hið sameiginlega fé- lag mun áfram vinna að hags- munum sinna manna. Kjara- baráttan tekur engan enda hjá okkur frekar en öðrum," sagði Kristján Sveinsson formaður. Hann starfaði lengi sem skip- stjóri, síðast á björgunarskipinu Goðanum. ¦ FULLTRÚAR Á STOFNFUNDI HINS NÝJA FÉLAGS 14 Sjómannablaðið Víkingur