2 II milljarðar króna Verðmæti kvótans er allt að 200 milljörðum króna. Til gamans má geta þess að fjárlög ríkissjóðs fyrir næsta ár gera ráð fyrir tekjum sem nema mun lægri fjárhæð en ætlað verðmæti kvótans, en í fjárlögum er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs verði innan við 140 milljarða. Þær útgerðir sem fá mestu úthlutað raða þar með yfir ótrúlegum verðmætum Erfitt er að finna nákvæmlegt verðmæti kvótans. Það hafa nokkrir aðilar reynt að fá sem sennilegasta tölu. Vitað er að aldrei verður unnt að reikna út neinn stóra sannleik. Hér á eftir verður stuðst við útreikn- inga sem taka mið af verðmætaútreikningum Viðskiptablaðsins. Samherji ræður yfir mestum kvóta allra útgerða. Þorskígildistonn eru rúmlega 25 þúsund á meðan næsta fyrirtæki, sem er Haraldur Böðvarsson-Miðfell sem er með rúmlega 19 þúsund tonn og þriðja mestan kvóta hefur Þormóður rammi-Sæberg-Magnds Gamalíalsson tæplega 19 þúsuns tonn. Verðmæti kvótans og verðmæti fyrirtækjanna Nafn 1. Samherji........................................................ 2. Haraldur Böðvarsson-Miðfell........................ 3. Þormóður rammi - Sæberg- Magnús Gam. 4. Útgerðarfélag Akureyringa............................ 5. Grandi............................................................ 6. Þorbjöm-Bakki.............................................. 7. Síldarvinnslan................................................ 8. Frosti-Miðfell................................................. 9. VinnslustööinMeitillinn................................. 10. Hraðfrystihús Eskifjarðar............................... 11. Fiskiðjan Skagfirðingur.................................. 12. ísfélag Vestmannaeyja................................. 13. Skagstrendingur............................................ 14. Básafell......................................................... 15. Útgerðarfélag Dalvíkinga.............................. 16. Ögurvík.......................................................... 17. Fiskanes........................................................ 18. Gjögur........................................................... 19. Fiskiðjusamlag Húsavíkur............................. 20. Kristján Guðmundsson................................. Þorskfgildi 25.084 19.232 18.999 15.289 14.175 10.350 10.055 9.334 8.981 8.164 8.042 7.876 7.571 7.355 6.211 5.173 5.168 5.029 4.739 4.315 Hlutfall % 5,69 4,36 4,30 3,47 3,22 2,35 2,28 2,12 2,04 1,85 1,82 1,79 1,72 1,67 1,41 1,17 1,17 1,14 1,08 0,98 Verðmæti kvóta 11.380 8.720 8.600 6.940 6.440 4.700 4.560 4.240 4.080 3.700 3.640 3.580 3.440 3.340 2.820 2.340 2.820 2.280 2.160 1.960 Verðmæti fyrirtækja 12.934 7.161 7.381 3.810 5.250 5.984 3.445 1.697 í dálkinum lengst til hægri er getið um verðmæti þeirra fyrirtækja sem eru skráð á Verðbréfaþingi íslands. Verðmæti kvótans og fyrirtækjanna er í milljónum króna. 32 SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR