Þýsk borg sem margir þekkja: Cuxhaven vill mejri samskipti við Islendinga Þeir eru margir íslensku sjómennirnir sem komnir eru á miðjan aldur sem þekkja þýsku borgina Cuxhaven við ósa Elbufljóts, en þangað sigldu íslenskir tog- arar mjög oft með afla af Islands- og Græn- landsmiðum og karfa úr Rósagarðinum. Margir þeirra minnast góðra stunda meðan staldrað var við í Cuxhaven. Gengi borgar- innar í hugum Islenskra sjómanna og skip- stjóra hefur hins vegar verið upp og niður í áranna rás. Nú vilja borgaryfirvöld í Cux- haven hins vegar efla viðskipti við fslendinga verulega og hafa í þeim tilgangi vakið ræki- lega athygli á sjálfum sér og þeim möguleik- um sem íslendingum standa þar til boða í sambandi við fiskinnflutning til Þýskalands um Cuxhaven. VlNABÆJARSAMSKIPTI VIÐ HAFNFIRÐINGA Það er ekki langt síðan Ingimundur Sig- fússon sendiherra vakti athygli mína á mikl- um og vaxandi vinabæjarsamskiptum Hafn- arfjarðar og Cuxhaven sem komust á í kjölfar sjávarútvegssýningarinnar á íslandi árið 1987," sagði Rudolf Meiboom, forstjóri fiskmarkaðarins í Cuxhaven í móttöku fyrir íslenska viðskiptasendinefnd sem þar var fyr- ir skö'mmu. Síðan þetta vinabæjarsamband komst á hafa samskiptin verið náin og stöðugt vaxandi, klúbbar hafa verið stofnaðir og gagnkvæmar heimsóknir eiga sér stað. Vináttubönd hafa verið og eru að skapast, við höfum haft þá ánægju að taka á móti íslensk- um listamönnum og ungu Au Pair fólki sem dvalið hefur hjá okkur um lengri og skemm- ri tíma. Hápunktur þessa samstarfs er þó í mínum huga íslensku menningardagarnir 50 Sjómannablaðið Víkingur