Ný og byltingarkennd vinnslulína fyrir frystihús Plötur í stað færibanda fcs - Ætlað að leysa flæðilínuna af hólmi Ný vinnslulína fyrir frystihús, sem án efa á eftir að valda byltingu í fiskvinnslu hér á landi, er nú í þróun og fram- leiðslu hjá Landssmiðjunni hf. Talið er að nýja línan geti aukið bitanýtingu flaka um rúm 10%, miðað við nýjustu flæðilínur, og hækkað afurðaverð vegna bættrar meðferðar og aukinna gæða. Jafnframt sparar hún mannafla í vinnslusal um 15%. Meginmunurinn á nýju lín- unni og hinni eldri er að hvert og eitt fiskflak fer á plötu í gegnum vinnsluferlið í stað færibanda áður. Aðeins eitt flak er á hverri plötu og það losnar því við allt hnjask sem mer og losar um fiskholdið. Önnur grundvallarbreyting er að flakið er snertifryst áður en þeð fer í vélskurð. Það auð- veldar skurðinn, bætir útlit og eykur nýtingu flaka. Ekki er lengur þörf á starfsfólki til að raða flakbitum inn í lausfrysti. Nýja linan er þannig upp- bygð að flökin eru í kældu um- hverfi á meðan á vinnslu stendur. Sjálvirkni er það mikil að mannshöndin snertir flakið aðeins einu sinni frá roðflett- ingu til lausfrystingar. Kælingin viðheldur ferskleika fisksins en jafnframt leiðir hún til þess að unnt verður að bæta starfsum- Björn Jóhannsson. hverfi fiskvinnslufólks. Hægt verður að vinna fiskinn nánast í stofuhita þar sem hráefnið er ekki utan lokaðs kælikerfis nema í þær 20 sekúndur sem tekur að snyrta flakið. Plötulínan býður upp á stór- aukna möguleika á skráningu og upplýsingaflæði. Á plöt- unni, sem flytur flakið, er þekk- ill eða tölvumerki, þannig að hægt er að fylgjast með og skrá hvað gert er á öllum stig- um vinnslunnar. Til dæmis er hægt að vigta og skrá hvert og eitt flak að og frá starfsmanni. Með því gefst kostur á að fylgjast mjög nákvæmlega með nýtingu og afkóstum. Auk þess er hægt að koma upp þekkingargrunni um vinnsluna sem er ómetanlegur við stjórn- un og áætlanagerð. Þegar tím- ar líða fram safnast saman dýrmætar upplýsingar um vinnsluna, svo sem um snyrti- tíma á flök miðað við þyngd. Nýju vinnslulínunni er ætlað að leysa flæðilínuna af hólmi. Flæðilínan kom fram fyrir rúm- um 10 árum og var bylting á sínum tíma. Helsti ókostur hennar er sá að flökin verða fyrir hnjaski á færiböndunum sem getur losað um fiskholdið og dregur úr fullkominni nýt- ingu. Á plötulinunni rekast flökin hins vegar aldrei á eða detta á milli færibanda. Flakið fer aldrei af plötunni nema í snyrtingu. Flæðilínan er hentug fyrir hópbónus en erfiðlega hefur gengið að sníða hana að .x.xxx.xxxxxxx*xxx^^ 68 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR