JAT/HKG1919 hausarinn er einstakur í sinni röð fyrir mar- gra hluta sakir, fyrst og fremst er hausun fisksins með allt öðrum hætti en áður hefur tíðkast. Þessi aðferð hefur leitt til þess að mun betri nýting fæst ef notuð er þessi gerð af hausara. Nýleg könnun á nýtingu sem gerð var af Útgerðarfélagi Ak- ureyringa (Ú.A.) staðfestir að flakanýting hækkar um 2-3,5 prósent á roðlausum þorsk- flökum. Þetta hefur umtalsverð áhrif á verðmæti þar sem nýt- ingaraukinn er hrein aukning við tekjur með nánast engum tilkostnaði. Á næstu dögum mun Ú.A. taka í notkun tvo hausara af þessari gerð. Hausarinn byggir á einka- leyfi höfundar vélarinnar, Jóns A. Þálmasonar svo kallaðri augnpinna stýringu. Venjulega þegar fiskur er hausaður í vél- um situr mikið af fiskholdi á hnakka fisksins og er hent með hausnum, augnpinna að- ferðin tryggir að hold situr á búk fisksins eftir hausun. Hold sem kemur af hausnum er á svo kólluðu hnakkastykki flaksins sem er dýrmætasti hluti þess og hækkar þa'r af leiðandi meðalverð afurðanna. Hausarinn hefur þann möguleika samtímis hausun að skera kinnar, fés og klumb- ur. Þessar aukaafurðir krefjast ekki aukinnar vinnu þar sem vélin gerir þetta samhliða hausuninni. ¦ Sjómenn og útgerðarmenn HOLDUM HAFINU HREINU! Sorpi má ekki henda í sjóinn, heldur á að safna því saman og koma með það að landi. Til þess að gera sjómönnum sorphirðuna auðveldari leigir Gámaþjónustan hf. út sorpgáma í mörgum stærðum og gerðum í skip og báta og sér um losun þeirra og um- hirðu þegar komið er að lahdi. Hafið samband við sölumenn í síma 568 8555 og fáið nánari upplýsingar. m liíiiHíD 'U- GAMAÞJONUSTAN HF. SlMI: 5688555 GAMAMONUSTAN HF. BÆTT UMHVERFI - BETRIFRAMTÍÐ SÚÐARVOGI 2, 104 RE GÁMAÞJÓNUSTAN HF. SlMI: 5688555 5 6 8 8 5 3 4 SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 73