Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Blaðsíða 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1998, Blaðsíða 32
I janúar og febrúar voru haldnir þrír fund- ir í Vestmannaeyjum undir heitinu: Siðferði sjávarútvegs. Fundaröð þessi var haldin í til- efni af ári hafsins og leitaði Fullorðinsfræðsla Landakirkju samstarfs við Hafrannsóknar- stofnun og Þróunarfélags Vestmannaeyja til opinnar umræðu um siðfræði sjávarútvegs. Fundirnir voru haldnir með viku millibili og voru í framsögu- og umræðuformi. Nið- urstöður fundaraðanna voru svo kynntar á samnorrænni ráðstefnu sem haldin var dag- ana 18-21 febrúar í Stamsund í Noregi þar sem fjallað var um siðfræði sjávarútvegs, en séra Bjarni Karlsson fór sem fulltrúi íslands á ráðstefnuna, en ásamt honum fóru séra Sig- ríður Guðnadóttir og séra Davíð Baldursson. Fyrsti fundurinn var haldinn 20. janúar, en þá flutti Hafsteinn Guðfinnsson sjávarlíf- fræðingur framsögu um siðfræði sjávarútvegs frá sjónarhóli lífríkisins, 26. janúar flutti dr. Bjarki Brynjarsson verkfræðingur framsögu um siðfræðina út frá sjónarhóli efnahagslífss- in og 3. febrúar flutd séra Bjarni Karlsson sóknarprestur í Vestamannaeyjum, framsögu um siðfræði sjávarútvegs frá sjónarhóli mannlífsins. Almennt voru fundirnir vel sóttir og umræður fjörugar og málefnalegar. Hins vegar fór það ekki milli mála að það sem efst var í hugum manna voru kvótamál- in og vöknuðu margar siðferðilegar spurn- ingar um það umfangsmikla mál. Þriðjudaginn 11. febrúar var svo haldinn samráðsfundur frummælenda og þeirra er þátt tóku í umræðunum. Á þeim fundi lögðu menn fram ávörp sín og báru saman bækur sínar um textann sem farið var með til Noregs Séra Bjarni vildi ítreka það að sá texti sem farið var með til Noregs var ekki neinn end- anlegur stórisannleikur um siðfræði sjávarút- vegsins, heldur fyrst og fremst vinnuplagg með hugmyndum fundarmanna um hvaða þætti þeir teldu við hæfi að taka inn í umræð- una um siðferði sjávarútvegsins. _Aðalatrið- ið er að fara með réttan texta frummælenda og þeirra sem þátt tóku í umræðunni. Það eru að sjálfsögðu andstæðar skoðanir og sjón- armið í textanum og jafnvel mótsagnir, engu að síður verður textinn að endurspegla um- ræðuna og fundina. Þetta átti ekki að vera heilsteypt plagg.“ „Markmið þessara umræðukvölda var að greina siðfræðileg álitamál á sviði sjávarútvegs og skýra ólík sjónarmið af yfirvegun," segir Bjarni.„Frummælendur sömdu texta í fram- haldi af kvöldunum þremur sem lagður var fyrir þátttakendur til umræðu og samþykktar þriðjudagskvöldið 11. febrúar þar sem leitast var við að gera hnitmiðaða grein fyrir helstu áherslum og sjónarmiðum. Textinn var síð- an þýddur á norska tungu og fluttur á ráð- stefnu um siðfræði sjávarútvegs sem kirkju- GUFUDÆLUR afkastamiklir vinnuþjarkar SKEIFUNNI 3E-F ■ SÍMI 581 2333 ■ FAX 568 0215 ) ) J 32 Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.