Sjómannaskólinn í Reykjavík býður upp á ýmis konar endurmenntun- arnámskeið fyrir skipstjórnarmenn. Öll eru þau valnámskeið utan eitt, fjarskiptanámskeiðið, sem öllum skipstjórnarmönnum er skylt að I sækja samkvæmt nýjum lögum. (vetur hafa reyndir skipstjórnarmenn á öllum aidri og víðs vegar af landinu setið á skólabekk í Reykjavík. Það voru líflegar umræður yfir kaffibollunum þegar Sjómannablaðið Víkingur hitti einn hópínn í marsbyrjun. Menn njóta þess að hittast og skrafa. Hörður Þórhallsson, skipstjóri og útgerðarmaður Sigþórs ÞH 100, hefur verið á sjó í rum 40 ár. Hann lauk skipstjórnarnámi frá skólan- um árið 1963. Ymislegt hefur breyst síðan þá en annað ekki. Skólinn óbreyttur en búið að íoka Röðli Mér finnst notalegt að koma í skólann aftur eftir öll þessi ár. Það rifjast upp fyrir manni góðir tímar. Skólahúsið er nánast óbreytt og ekki van- þörf á að gera endurbætur. Mér virðist sem gamla lýsingin vera í skólastofunum; hún fór í taugarnar á mér þá og gerir enn. Verst er að það er búið að loka Röðli, aðalsamkomu- staðnum okkar í þá daga," segir Hörður Þórhallsson sem stundar nám í sínum gamla skóla eftir 35 ára fjarveru. Hann var sextán ára þegar hann fór fyrst á sjó og hefur verið sleitulaust að í rúm 40 ár. Hörður býr í Keflavík og ekur til Reykjavíkur á hverjum degi í skólann. Það er meira vandamál að fá bílastæði á lóðinni núna. Mig minnir að fjórir nemendur hafi átt bíla í þá daga," segir hann. Varðandi námskeiðín segir hann að þau séu gagnleg fyrir sig. Það hafa orðið gífurlegar breytingar í fjarskiptatækninni Það hafa orðið gífurlegar breytingar í fjarskiptatækninni." og við verðum að fylgja þeim. Núna er búið að leggja morsið niður og annað komið í stað- inn. Þetta námskeið er fólgið í því að læra á nýja tækni í neyðar- og öryggistilfellum. Á næsta ári verða allir skipstjórn- armenn að hafa sótt þessi námskeið. Þau taka tíu daga, skemmtilega vil ég segja. Þetta er full vinna því við erum í skólanum í sex til átta tíma á dag," segir Hörður Þórhallsson skipstjóri. ¦ 14 SJÓMANNABLAÐID VfKINGUR