Björn Steinþórsson er aðeins 17 ára gamall en gallharður á því að leggja sjómennskuna fyrir sig. Hann er nemandi í dagsskóla Stýrimannaskólans, sjávarútvegsbraut. Hann hefur jafnframt tækifæri til að taka 30 tonna réttindin aukalega. Hann er bjartsýnn á framtíðina til sjós, svo bjartsýnn að hann ætlar sér að þéna vel í framtíðinni. Ætla að græða mih:inn ,Við sem erum á sjávarút- vegsbrautinni í Stýrimanna- skólanum eigum kost á því að ná okkur í 30 tonna réttindin á kvöldnámskeíðum. Til þess að fá skírteinið þarf engan sigl- ingatíma," segir Björn Stein- þórsson, sautján ára strákur frá Kópaskeri sem segist hafa sjómennsku í blóðinu. Hann er ekki efins um að nóg verði að gera fyrir skipstjóra framtíðar- innar. Miðað við hvað það eru fáir í skólanum hljótum við að verða eftirsóttir þegar vantar nýja réttindamenn um borð," segir hann bjartsýnn. (vetur eru 12 nemendur á sjávarút- vegsbrautinni í Stýrimanna- skólanum Faðir Björns, Stein- þór Guðmundsson skipstjóri í Namibíu, benti á að hann væri að gera mistök með því að fara í Stýrimannaskólann þar sem framtíð skipstjórnar á ís- landi væri ekki heillandi. En hann samþykkti þessi rök mín um að við yrðum kannski fáír en eftirsóttir," segir Björn. Og kannski mun hann hafa rétt fyrir sér. Björn hefur lítið starfað á sjó og þarf því að ná sér í sigling- artímann seinna. Hann segir að það sé erfitt að fá pláss fyrir unga stráka. Hann telur að það verði hugsanlegra auð- veldara að fá pláss með 30 tonna réttindi upp á vasann. Þau gefi til kynna að hann viti þó eitthvað um sjómennsku. pening Reynslu sína hefur hann aðal- lega fengið með þeim túrum sem hann fór með pabba sín- um sem krakki. Ég hef hugsað mér að Ijúka 3. stiginu frá skólanum, fá mér nógu mikil réttindi til að eiga möguleika á að þéna mikið," segir hann. Bjarni Gunnar skýtur hér inn í að kannski fái hann pláss hjá Birni þegar tim- ar Iíða. Hann neiti varla göml- um skólafélaga. Bjarni býr á heimavist skól- ans meðan hann er í námi. Hann segir gott að búa í skól- anum. Það er ósköp notalegt að búa á sama stað og maður sækir skóla. Ég er heimamað- ur hér, á inniskónum allan daginn. Svo er ekki verra hvað er stutt í borgarlífið," segir þessi knái strákur sem blæs á allt tal um fá atvinnutækifæri fyrir réttindamenn. Kannski að hann hafi rétt fyrir sér; fáir og eftirsóttir. ¦ Skólafélagarnir á 30 tonna námskeiðinu í byrjun mars. Alls eru fjórtán nemendur á námskeiðinu en einn nemandi var fjarri góðu gamni þegar Sjómannablaðið Víkingur heimsótti hópinn. 16 SJÖMANNABLADIÐ VÍKINCUR