Umsjón: Hilmar Snorrason HÍíin iír Aelml Bjargað eftir mánuð Áhöfnin á gasskipinu Jo Elm varð þeirra gæfu aðnjótandi að rekast á sjö menn sem voru á reki í 10 metra bát á Kyrrahafi. Þeim til mikillar undrunar kom í Ijós að mennirnir sjö, sem voru ættaðir frá Nigaragúa, voru búnir að vera á reki í meira en mánuð á bát sínum. Báturinn hafði orðið fyrir vélarbilun og þeir því lítið getað aðhafst. Á- höfninni á Jo Elm til enn frekari undrunar þá klifruðu mennirnir óstuddir upp í skipið og voru þeir vel á sig komnir að mati þeirra. Til matar höfðu þeir lagt sér fisk sem þeir veiddu og drykkurinn var skjaldbökublóð en þeim tókst að fanga nokkr- ar slíkar. ¦ Smygl á eiturlyfjum Mikla athygli vakti smygl á eiturlyfjum sem fundust í íslen- sku fiskiskipi fyrir skömmu og þar þótti mönnum fengurinn stór. Tollgæslunni í Texas hefði ekki þótt sá fundur merk- ilegur samanborið við þeirra fund. Við leit í stórflutningask- ipi, skráðu í Panama, fundu þeir 5 tonn af kókaíni sem falið hafði verið í járngrýtisfarmi þess. Grunur hafði vaknað um að eitthvað af eiturlyfjum væru um borð og fékk bandaríska strandgæslan leyfi stjórnvalda í Panama að vísa skipinu til hafnar í Houston í Texas þar sem leitin fór fram.Skipstjórinn ásamt nokkrum skipverjum voru hnepptir i fangelsi. ¦ Bresk siglingamálayfirvöld ætla að bregðast við með hörku ef skip brjóta siglingareglur í Ermasundi. Hert eftirlit Breta Bresk siglingayfirvöld og strandgæslan hafa hert verule- ga eftirlit með siglingum skipa í Ermasundi vegna marg endurtekinna brota á alþjóðasiglingareglum. Nýlega skri farþegaferju, Eurovoyager, sektaður um 1000 pund og gert að greiða 250 pund til viðbótar í kostnað eftír að skipið undir hans stjórn hafði næstum lent í árekstri við tvö siglingareglum á ferjunni. [ öðru tilfelli hefur verið gefin út handtökuskipun á skipstjóra úkranísk verksmiðjuskips sem sigldi á móti umferð í Ermasundinu á annan var annar stýrimaður á kýpver- skip. Ekki hafði verið farið eftir klukkutíma. ¦ Gildistaka GMDSS Talið er að um þriðjungur heimskipastólsins muni ekki hafa uppfyllt nýu fjarskip- tasamþykktina GMDSS er hún tók gildi um allan heim 1 .febrúar s.l. Að vísu verð ég að leiðrétta þetta því ekki tók hún gildi um allan heim þar sem við íslendingar höfðum frestað gildistöku samþykk- tarinnar um eitt ár. Okkur munar nú ekki um slíkt hér á landi og svo er bara að vona að skipin okkar verði ekki kyrrsett vegna þessa í erlen- dum höfnum. Það var árið 1992 sem þessar breytingar voru fyrst kynntar en siglinga- heimurinn var nú ekki að flýja sér við að skipta út fjarskipt- abúnaði til samræmis við samþykktina. Söluaðilar fjarskiptabúnaðar um allan heim lýstu æðinu sem útsöluæði og einn söluaðili sagðist hafa fengið fleiri pan- tanir í janúar en allt árið í fyrra. Sum ríki hafa lýst því yfir að þau muni taka á skipum sem ekki uppfylla kröfurnar og gen- gur Panama þar sínu lengst. Yfirvöld þar í landi segjast ætla að sekta hvert það skip sem ekki uppfyllir kröfurnar um 10.000 dollara. Önnur ríki hafa boðað vægari aðgerðir ef skipin geta sýnt fram á að búnaður hafi þegar verið pantaður. ¦ Sjómannablaðið Víkingur