Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Sjómannablašiš Vķkingur

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Sjómannablašiš Vķkingur

						Egypsk moskva.

gefa og lítið á okkur að græða. Vorum við

hreinlega settir í skammarkrókinn.

MÚTUR OG HEILABLÓÐFALL

Ekkert bólaði á Barwilsmönnum að koma

að sækja Sigurð og var hann orðinn mjög á-

hyggjufullur og leið illa. Um sexleytið gefst

Siggi Bryn upp á biðinni og semur við einn

kaupahéðininn um að fara með Sigurð í

land. Var honum borgað með gömlum segla-

druslum og fleiru. Ég var ósáttur við þessa á-

kvörðun þar sem við þekktum hvorki haus

né sporð á manni þessum og vissum ekkert

hvað hann kynni að taka til bragðs. Að auki

leið Sigurði ekki vel. Þetta varð þó úr og

komst Sigurður heilu og höldnu í land og gat

haft samband við Barwilskrifstofuna. Þá

loksins komu þeir og fóru með hann á

sjúkrahús þar sem í ljós kom að hann hafði

fengið vægt heilablóðfall. Flaug hann svo

heim tveim dögum seinna og er hann nú úr

sögu þessari. Tók Siggi Bryn. við stjórn

skipsins og bætti einu hlutverki við mig en

það var að vera túlkur þó enskan mín sé ekki

upp á marga fiska.

Ekki fengum við kostinn sem við pöntuð-

um og höfðum þá samband við annan

höndlara og kom hann með kost til okkar.

Þeir Barwilsmenn tóku það mjög óstinnt

upp og hótuðu öllu illu. Létum við vita af

þessu öllu saman heim og var haft samband

við höfuðstöðvarnar í Óslo og þeir beðnir að

þrýsta á að hleypa okkur í gegn. Gekk það

eftir og fengum við skilaboð að við kæmumst

í gegn daginn eftir.

Alltaf komu nýir og nýir menn til að reyna

að selja okkur eitthvað. Var mikið af þeirra

varning, allskonar plattar og bolir, einnig

papírusmálverk. Leist mér vel á eitt þeirra og

keypti. Fór ég að tala við þann sem seldi og

spyrja hann ýmissa spurninga. Þá kom í ljós

að hann hafði bdið í Svíþjóð í nokkur ár og

talaði sænsku nokkuð vel. Skellti ég þá á

hann norskunni minni og varð ég margs vís-

ari um hvernig málin stóðu þarna. Hann

sagði að við á þessu skipi værum ekki hátt

skrifaðir þar sem erfitt væri að pranga ein-

hverju inn á okkur. Virðist sem þessi kaup-

mennska þarna á skipalægjunum sé heilmik-

il útgerð og skipulögð.

Við höfðum keypt viðbótarskammt af sí-

garettum til að gefa í mútur því okkur var

orðið ljóst að við yrðum þarna til eilífðarnóns

ef við gerðum það ekki. Okkur var skipað

hvað eftir annað að létta akkerum og færa

okkur og allt gert til að gera okkur lífið sem

leiðast. Einhver eftirlitsmaður kom til okkar

og átti að skoða akkerisbúnað og fleira. Viss-

um við að ekkert var að vindubúnaðinum en

samt sagði hann að spilið hífði of hægt en

myndi sjá í gegnum fingur við okkur og

sleppa okkur í gegn ef við létum hann fá

nokkur karton af sígarettum, annars myndi

hann skrifa skýrslu og kæra. Svona var allt

eftir þessu.

ÞUNGU FARGI AF OKKUR LÉTT

I bítið næsta morgun ræsi ég aðalvélina um

kl. 07:00 og síðan bíðum við eftir lóðsinum

sem átti að lóðsa okkur í gegnum skurðinn.

Sjáum við stóran hóp af skipum fara inn í

skurðinn en enginn virtist skipta sér af okkur

og erum við orðnir smeykir um að nú eigi að

skilja okkur eftir einn daginn enn. Það er svo

ekki fyrr en kl. 14:00 sem lóðsinn kemur til

okkar og segir okkur að hífa upp akkerið.

Einnig komu með okkur einir 6 menn sem

áttu að vera einskonar eftirlits- og aðstoðar-

menn. Var híft um borð bátsskrifli sem

gegna átti hlutverki björgunarbáts og guð má

vita hvað þurfti að borga fyrir leiguna. Var

gamla skektan hans Lúlla Kristjáns, Kisa var

hún kölluð og þótti ekki merkileg, hreinasta

glæsifley miðað við þetta bátsskrifli. Ekki

voru menn þessir fyrr komnir um borð held-

ur en þeir voru búnir að setja upp verslun í

setustofunni.

Lóðsinn tók nú við stjórn skipsins og

sigldum við hægt í átt að skurðarmynninu og

inn í hann. Heimtar hann strax sígarettur

handa sér og bað um sérstakan klefa til afnota

og var það látið eftir honum.

Við vorum skip númer 8 í 10 skipa hóp.

Tveir hópar eru teknir á dag og eru stórskip-

in tekin á undan. Við vorum í seinni hópn-

um þennan dag og var það fyrri hópurinn

sem við höfðum séð fara inn í skurðinn

snemma um morguninn. Var þungu fargi af

okkur létt þegar við vorum komnir af stað.

Nú fór að verða gaman að fylgjast með út-

sýninu og sigldum við framhjá mörgum fal-

legum moskum. Einnig voru margir fallegir

garðar með háum pálmatrjám. Datt manni

helst í hug ævíntýri úr 1001 nótt.

Myndir af fáklæddu kvenfólki

Segja má að Suezskurður sé í þrem hlutum

þar sem tvö vötn eru á leiðinni. Er annað

vatnið, nær Suez, geysistórt og skiptist í tven-

nt. Heitir annar helmingurinn El Buheiret El

Murra El Kubra (Great Bitter Lake) og hinn

El Buheiret El Murra El Sughra (Little Bitter

Lake). Hitt vatnið heitir Buheiret El Timsah

(Lake Timsah) og er það þar sem skipalest-

irnar mætast, þ.e. skipalestin sem hafði farið

inn í skurðinn við Port Said mætti okkur

þarna. Á siglingunni gegnum skurðinn sá

maður hversu gríðarlegt mannvirki þetta er.

Spurði ég lóðsinn spjörunum úr um sögu

skurðarins sem hann svaraði fúslega milli

þess sem hann heimtaði einhverjar gjafir

handa sér.

Skurðurinn var tekinn í notkun árið 1869

og höfðu 250.000 manns dáið við að grafa

hann að sögn lóðsins. Hann er um 20 m

djúpur og rúmir 100 m á breidd. Eru miklir

sandhaugar út frá bökkunum. Tuttugu og

fimm dæluskip sjá um að dæla sandinum

upp úr skurðinum en alltaf verður að við-

halda dýptinni. Heildarlengd á skurðinum er

162 km.

Þegar við höfðum mætt skipalestinni sem

kom á móti á Timsah-vatni og komnir inn í

skurðinn á ný var heldur betur eyðilegt um

að litast á bakkanum austan megin. Öðru

hvoru sáum við ónýt stríðstól sem höfðu ver-

ið skilin þarna eftir í sex daga stríðinu. Virtist

38

SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64