Fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga 12 þingmanna úr fjórum flokkum þess efnis ao hvalveiðar skuli leyfoar frá og með árinu 1999. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar spáir því að meirihluti Al- þingis samþykki tillöguna. Sjómannablaðið Víkingur kannaði málið meðan það var til meðferðar í sjávarútvegsnefnd þingsins Hvalræði á Alþingi Ég spái því að við hefjum hvalveiðar í sumar," sagði Guðjón Guðmundsson al- þingismaður í samtali við Sjómanna- blaðið Víking, áður en sjá- varútvegsnefnd tók málið til umfjöllunar. Fyrir Alþingi iigg- ur tillaga til þingsályktunar frá Guðjóni og 11 öðrum þing- mönnum úr fjórum stjórnmála- flokkum þess efnis að Alþingi á- lykti að hvalveiðar skulu leyfðar frá og með árinu 1999 á þeim teg- undum og innan þeirra marka sem Hafrannsóknarstofnunin hef- ur lagt til. Sjávarútvegsráðherra verði falin framkvæmd veiðistjórn- ar á grundvelli gildandi laga. Krist- ján Loftsson forstjóri Hvals hf. sagð í samtali við blaðið að allt væri ti reiðu að hefja hvalveiðar um leið og leyfi fengist. Hann var hins vegar ekki sannfærður um að ríkisstjórnin heimilaði hvalveiðar þótt meirihluti Alþingis samþykkti tillöguna. Það eru þingmenn úr sex kjördæmum sem standa að tillögunni um að hefja hval- veiðar. Tillagan var lögð fram á síðasta þingi en var ekki afgreidd þá og því endurflutt. Þessi tillaga okkar var send út til umsagnar og hefur fengið feiknalegar góðar umsagnir meðal annars frá öllum heildarsamtökum sjómanna og verkafólks, LIU, sveitarfélögum og ýmsum fleirum. Núna stendur bara á sjáv- arútvegsnefnd þingsins að afgreiða þetta frá sér til seinni umræðu en ég held að það verði gert fljótlega eftir að þing kemur saman á ný. Nú reynir kannski á þetta mál í atkvæða- greiðslu í þinginu í fyrsta sinn í 16 ár," sagði Guðjón Guðmundsson. Verður hasar erlendis? Einn af flutningsmönnum tillögunnar um að hefja hvalveiðar á þessu ári er Kristinn H. Gunnarsson. Síðan tillagan kom fram hefur hann skipt um flokk og er orðinn formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis. í samtali við blaðið sagðist Kristinn frekar gera ráð fyrir að nefndin afgreiddi málið aftur til þingsins fljótlega eftir að þing væri komið saman á ný í byrjun febrúar. Kristinn sagði enga breyt- ingu hafa orðið á sinni afstöðu og hann styddi tillöguna. En á Kristinn H. Gunnars- son von á að málið nái fram að ganga á þingi í vetur Og veiðar hefjist? Það verður bara að koma í ijós. Ef það verður ein- hver mikill hasar er- lendis hljóta menn auð- vitað að hægja á sér. En svo er það spurning hvort það verði nokkur hasar. Um það veit eng- inn nema láta reyna á það. En það eru engin rök fyrir áframhaldandi stöðvun veiða út frá al- þjóðasamningum eða vegna þess að stofnarnir þoli ekki veiðar," sagði Kristinn. Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson. Þeir hafa ekki verið spenntir fyrir að hefja hvalveiðar. HRÆDDIR Vlð DRAUGA Hvalveiðum var ekki hætt á sínum tíma vegna 42 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR