V5 Þnu&tn&ionr IKINGUR Samvinnuferðir-Landsýn bjóða fram ótal freistandi ferðatilboð á hag- stæðu verði. Þar á meðal eru heillandi séríerðir til valdra staða Pað er sama hvort fólk vill fara um fjar- lægar og framandi slóðir í sumarfríinu, til sólarstranda eða til næstu nágrannalanda. Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir-Landsýn býður upp á svo fjölbreytt úrval ferða að þar finna allir eitthvað við sitt hæfi. Það er hins vegar eins gott að draga ekki lengi að bóka sig og sína í sumarleyfisferðina því eftirspurnin hefur sjaldan eða aldrei verið meiri. Samvinnuferðir-Landsýn hefur um langt skeið verið brautryðjandi á íslenskum ferðamarkaði í að bjóða upp á spennandi sérferðir um merkar og framandi slóðir. Á þessu ári eru í boði fjöldi skemmtilegra sérferða sem eru sérsniðnar að þörfum þeirra sem eru í leit að nýjum ævintýrum undir leiðsögn traustra fararstjóra. Með því að fara í sérferð gefst gott tækifæri til að kynnast mörgu því besta sem viðkomandi hafna lönd og þjóðir bjóða í mat og drykk, menningu og listum fyrir utan ýmsa afþr- eyingu. Reyndir fararstjórar sjá um alla framkvæmd ferðanna og því geta ferða- langarnir notað tímann vel og notið þess áhyggjulausir sem í boði er. Hér verður aðeins getið um þrjár af þeim fjölmörgu sérferðum sem í boði eru. I sjómannablaði er auðvitað við hæfi að minnast fyrst á draumasiglingu á Dóná 7. til 20. júní. i þessari ferð er innifalin viku- sigling með hollenska skípinu m.s. Esmer- alda, þar sem farþegar njóta lífsins við fyrsta flokks aðstæður og víða komið við. Auk þess að skoða hinar fögru borgir Búdapest, þar sem siglingin hefst, Vín og Prag, má nefna viðkomur í Bratislava, höf- uðborg Slóvakíu, Dumstein, Spitz, Melk, Wallsee og Passau þar sem siglingunni lýkur. Rétt er að vekja sérstaka athygli á ein- staklega freistandi ferð til Englands og Frakklands 19. ágústtil 5. september. Flogið er til London og ekið beint til Torqu- ay þar sem gist er í fimm nætur á fyrsta flokks hóteli. Farið verður til helstu menn- ingar- og sögustaða í nágrenninu, meðal annars til Bath, sem þykir fegurst borga í Englandi. Eftir dvölina í Torquay er farið til Portsmouth þar sem æskuheimili Dickens er skoðað. Að því loknu er sigtt yfir til Frakklands og gist í fjórar nætur í bænum St. Malo. Þar um slóðir er margt að skoða, meðal annars bæinn Paimpol en þaðan 54 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR