Guðjón A. Kristjánsson forseti FFSÍ skrifar vegna ummæla Bjarna Sveinssonar Manni gæti nú sár- nað, eða hvað? Upphaf málsins má rekja til þess að vara- maður Bjarna Sveinssonar í stjórn Lífeyris- sjóðs sjómanna, Benedikt Valsson, mætti sem oft áður í hans stað á stjórnarfundi í Lífeyrissjóði sjómanna þann 4. nóvember síðastliðinn. A þeim fundi kom fram tillaga atvinnurekenda á stjórn Lífeyrissjóðs sjóman- na um að enn einu sinni skyldi skerða lífeyrir bótaþega við útgreiðslu Iífeyris flatt um 13,4% án þess að gera neinar aðrar aðgerðir eða lagfæringar á reglum Lífeyrissjóðs sjó- manna. Þessi tillaga fulltrúa atvinnurekenda var samþykkt af öllum án athugasemda nema fulltrúa FFSÍ, Benedikt Valssyni, sem hafnaði einhliða skerðingu án þess að neitt annað væri reynt til þess að vinna á halla Líf- eyrissjóðs sjómanna. Á þessum stjórnarfundi gerði fulltrúi samtakanna efnislega grein fyrir atkvæði sínu. Hann taldi að heppilegra væri að stjórnin næði saman um að aðilar deildu með sér halla vegna framtíðarskuldbindinga sjóðsins. Auk þess benti fulltrúi Farmanna- og fiskimannasambands íslands á að lögmæt samþykktar stjórnar Lífeyrissjóðs sjómanna væru afar hæpin þar sem skýrt er kveðið á um í 1. kafla 5. grein laga og 19. grein reglugerðar sjóðsins að breyting á reglugerðinni skal staðfest af öllum þeim samtökum sem til- nefna fulltrúa í stjórn sjóðsins. Samkvæmt fyrirliggjandi lagafrumvarpi er gildandi reglugerð Lífeyrissjóðs sjómanna gjörsamlega kollvarpað án þess að leitað hafi verið eftir staðfestingu tilgreindra aðila eins og gildandi lög kveða skýrt á um. Það skal tekið fram vegna síðari ávirðinga sem Bjarni Sveinsson hefur borið fram á mig sem þetta skrifar að ég veit að Bjarni Sveins- son sendi engin skilaboð til starfsmanna FFSÍ eða Benedikts Valssonar varafulltrúa síns í Lífeyrissjóði sómanna, hvaða afstöðu Bene- dikt ætti að hafa uppi varðandi þessa tillögu um 13,4% flata skerðingu sem allir aðrir en við frá FFSÍ samþykktu að yrði framkvæmd sem fyrst. Mér er það vel ljóst að aðalfulltrúi okkar í stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna til margra ára, Bjarni Sveinsson, átti oft undir högg að sækja og fékk á sig marga óverðskul- daða glósuna frá fulltrúum atvinnurekenda í stjórn Lffeyrissjóðs sjómanna. Ég veit líka að fáir hafa lagt jafnmikið í sín trúnaðarstörf fyr- ir FFSI og Bjarni Sveinsson. Við starfsmenn FFSf, forseti og framkvæmdastjóri, sem þur- fum að taka við störfum aðalmanna í nefnd- um, stjómum og ráðum ef þeir eru ekki til staðar verðum oft að axla þá ábyrgð að reyna að ná þeirri lendingu í málin sem okkar skyn- semi og reynsla segir okkur að sé besta lend- ingin í hverju máli miðað við lög og reglur eða aðstæður á hverjum tíma.Það er auðvitað hægt að vera bara á móti til eilífðar og öskra nei og aftur nei. Það kann vel að vera að það virki vel út á við um skamman tíma að vera baráttujaxl og hafa hátt en skilja skynsemina eftir heima í skúffu. Um það verður hver að dæma fyrir sig þegar frá líður. Okkar mat var það að það væri skynsamlegt að ná sáttum við fulltrúa Sjómannasambandsins og ASÍ um að henda út 30 ára reglunni sem hefði þegar á næsta ári skert sérstaklega marga af okkar lífeyrisþegum umfram aðra. í viðtalinu segir Bjarni Sveinsson að afnám 30 ára reglu hafi verið tekin að honum fjar- verandi og að eftirgjöf til þess að afnema hana stangist gjörsamlega á við stefnu FFSÍ. Þetta er ranglega með farið, Á sambandsstjórnar- fundi í FFSÍ þann 13. nóvember 1998 var samþykkt tillaga frá Guðlaugi Gíslasyni að leggja skyldi ofurkapp á að ná út 30 ára regl- unni og einnig að tryggja betur í texta Iag- anna lífeyrisréttindi þeirra sem starfa hjá er- lendum aðilum og á erlendum skipum í eigu íslenskra aðila.Til þess að ná þessu ftam varð að finna sáttaleið með aðilum í stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna. Svo oft varst þú Bjarni Sveinsson, búinn að reka þig á þann vegg með þínar hugmyndir og tillögur í stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna og oft þurftir þú sjálfur að taka snarpar snerrur í stjórn FFSÍ þegar þú varst að berjast fyrir þínum hugmyndum um skert réttindi sjóðfélaga, til þess að laga stöðuna í framtíðarrekstri Líf- eyrissjóðs sjómanna að engum ætti að vera betur ljóst en þér að það varð að finna sáttaleið ef leysa átti málið og fá eitthvað af okkar áherslum í FFSÍ fram. í því sambandi breytti engu þó þú færir í frí með þinni fjöl- skyldu til útlanda. Við sem heima vorum urðum að reyna að finna lausn hvort sem þér líkar það betur eða verr. Eg er hjartanlega sammála þér að sjómenn ættu að standa saman um að verja réttindi sín og sækja á um auknar greiðslur ftá atvinnu- rekendum í lífeyrissjóð. Staðreyndin er hins vegar sú þar sem nýjasta tryggingafræðilega úttektin, gerð í mars og apríl s.l. sýnir enn 28 SJÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR