Úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla íslands á kostnaði vegna sjóslysa Áriegur kostnaður 3-4 milljarðar Kostnaði vegna sjóslysa má skipta í tvennt, annars vegar persónulegan kostnað þess sem slasast og aðstandenda hans og hins vegar kostnað er leggst á samfélagið í heild, það er kostnað sem felst aðallega í forvarnarstarfi, sjúkraflutningum, sjúkrakostnaði, trygging- um og bótum. Heildarkostnaður vegna sjó- slysa á íslandi á ári er metinn liggja á bilinu 3>2 - 4,3 milljarðar króna á verðlagi ársins 1997 sem svarar til 0,6 - 0,8% afvergri lands- hamleiðslu þess árs. Þecta kemur fram í ágripi skýrslu Hag- ftæðistofnunar Háskóla Islands um kostnað vegna sjóslysa á íslandi. Skýrslan var unnin fyrir Landlæknisembættið og kom dt á síð- asta ári. f formála Ólafs Ólafssonar þáverandi landlæknis segir að brýnt sé að leita leiða til þess að lækka slysakostnað við atvinnugrein sem haldi íslandi á floti. I ágripi skýrslunnar kemur fram að per- sonulegur kostnaður vegna sjóslysa, sem met- mn er með greiðsluviljaaðferð, er áætlaður 1>5 milljarðar króna á verðlagi ársins 1997. Adegur kostnaður sem leggst á samfélagið Vegna sjóslysa er metinn á bilinu 1,7 - 2,8 fnilljarðir króna á verðlagi ársins 1997. Langmestur hluti samfélagslegs kostnaðar er vegna sjótrygginga, það er trygginga sem greiddar eru vegna tjóns á skipum og bátum. A tímabilinu 1986-96 voru greiddar að með- altali 1.659 milljónir króna í sjótryggingar, sem svarar til 73% af heildarkostnaði samfé- 'agsins. Annan stærsta póstinn má einnig rekja til tryggingafélaganna en það er skrif- storu- og stjórnunarkostnaður vegna sjó- trygginga og atvinnu- og slysatrygginga sjó- manna. Þær greiðslur námu að meðaltali um 220 milljónum króna eða 9,7% af kostnaðin- Urn. Þar á eftir eru bótagreiðslur sem Trygg- 'ngastofnun ríkisins greiðir slösuðum sjó- ¦ttönnum. Á tímabilinu 1987-96 voru árlega greiddar um 124 milljónir í slysatryggingar sjómanna sem nemur 8,7% af kostnaði sam- félagsins vegna sjóslysa. Flestir lítið meiddir Skráning sjóslysa samkvæmt svokallaðri AlS-flokkun hófst árið 1991 á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að sögn starfsmanna slysadeildarinnar var flokkunin í fyrstu ekki áreiðanleg en þrátt fyrir þessa annmarka ætd skipting sjóslysa eftir alvar- leika þeirra að gefa ein- hverja mynd af raunveru- leikanum. Langflestir sem slasast á sjó eru flokkaðir sem lítið meiddir sam- kvæmt AlS-flokkunarkerf- inu. Árlegt meðaltal fyrir tímabilið 1991-96 sýnir að tæp 76% þeirra slösuðu sjómanna sem leituðu til slysadeildarinnar voru flokkaðir lítið meiddir. Hlutfallið minnkar eftir því sem meiðslin verða alvar- legri, innan við 1% slas- aðra sjómanna teljast mjög alvatlega eða lífshættulega slasaðir. Að meðaltali voru 6,9% þeirra er leituðu til slysadeildar SHR vegna slysa á sjó lagðir inn á tímabilinu 1974-96. Inn- lagnir voru flestar árið 1986 þegar 10,4% af þeim leituðu til slysadeildarinn- ar voru lögð inn en fæstar árið 1993 þegar 4,2% voru lögð inn í kjölfar komu á slysadeild SHR vegna slysa á hafi úti. Á árunum 1986-96 voru 367 sjómenn metnir með minni örorku en 50% en 22 með meiri. Árið 1993 voru flestír einstaklingar metnir með örorku á tímabilinu eða 59 ein- staklingar, 55 þeirra voru metnir með minni örorku en 50% og 4 með meiri. Þeir sem eru með 10-49% örorku fá eingreiðslu frá Trygg- ingastofnun ríkisins en þeir sem metnir eru með meiri örorku en 50% fá greiddan ör- orkulífeyri mánaðarlega. ¦ Útvegssvið á Dalvík Á Dalvík er starfrækt Útvegssvið Verkmenntaskólans á Akureyri, VMA. Á fjórum brautum er boðoð upp á eftirfarandi nám: Almenn braut: Kenndar eru almennar greinar 1. & 2. árs framhaldsskóla Sjávarútvegsbraut: Kennt er til skipstjórnarprófs 30 tonna réttinda. Sjávar- útvegsbraut er undanfari I. og II. stigs skipstjórnamáms Fiskvinnslubraut: Kennt er til fiskiðnaðarmannsprófs. Fiskvinnslubraut telur 4 annir og hefja nemendur nám að loknu 1. ári þ.e. 36 einingum í framhaldsskóla Skipstjórnarbraut: Kennt er til I. og II. stigs skipstjórnarréttinda Ymis námskeið: Ýmis námskeið eru haldin s.s. tölvufræði, GMDSS fjar skiptakerfið, stöðugleiki fiskiskipa, ARPA tölvuratsjá, 30 tonna réttindí, skyndihjálp, endurmenntunarnámskeið fiskvinnslufólks, gæðastjórnun o.s.frv. ef næg þátttaka fæst Upplýsingar á skrifstofu skólans sími 466-1083 frá klukkan 0800 -1300 og heima hjá kennslustjóra í síma 466-1860 og gsm 862-8082 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 33