meir á sérvisku listamanna. Þjóðlegur drykkur landinn", sagði Óli. Óli Tótu var hann kallaður, en hét Ólafur Sigurjónsson, Ólafssonar frá Litlabæ, bróð- ursonur Ása. Óli var kenndur við móður sína eins og margir aðrir Vestmannaeyingar. Óli Tótu var einn af þessum mönnum sem fá lífsgreindina í vöggugjöf en alltof fáir fá að njóta. Óli hvarf með bátnum sínum fyrir nokkrum árum í öldur hafsins og var mörg- um harmdauði. Að lokum I lúkarnum á Hersteini var stílabók sem kölluð var Skálda". I þessa bók skrifuðu menn vísur, eða það annað sem í huga kom. Því miður hvarf þessi bók einn góðan veður- dag, að ég held þegar Hersteinn litli var í slipp. Kannski er þessa stílabók einhversstað- ar að finna og þætti mér vænt um að fregna af henni ef svo væri. Þegar fyrsti róður var farinn vorum við ekki komnir lengra en skammt austur fyrir skansinn þegar Ási sagði að nú skyldu menn renna færum. Frost var á og stilla og var því hélað dekkið. Einhver dró þyrskling og var hann óðar blóðgaður. Blóðið rann um hélað dekkið. Þá orti undirritaður: Flýtur blóð um fölvað dekk frjósa ljóð á vörum. Ástarglóðin unaðsþekk eykur gróðurmátt í svörum. Ég þóttist hafa staðið mig vel að koma með hringhenduna. Nafni minn, Ragnar Sigurðsson úr Skagafirði var fljótur að yrkja: Gleði sviptur, fölur, fár flækist hann á sjónum. Nú er ekki nafna Lár notalegt á klónum. Þegar hér var komið þótti Ása formanni nóg fiskað og setti kúrsinn inn að bryggju og varð ekki lengri róðurinn þann daginn. Þetta spjall um listamannabátinn" endar með vísu eftir þennan ágæta skagfirska hag- yrðing: Kaldir gæar sigla sæ sálar hægist raunin. Ef ég ræ með Ása í Bæ eflaust fæ ég launin. H Sendið blaðinu bréf Við beinum þeirri áskorun til lesenda blaðsins að þeir sendi blaðinu bréf og tjái skoðanir sínar á þeim íjölmörgu málum sem snerta réttindi og afkomu sjómanna. Eins er blaðið opið fyrir ýmiskonar efni. Hafið samband við ritstjóra í síma 551- 5002. Verðlauna- krossgátan Nú verða tvenn verðlaun í boði fyrir réttar lausnir Dregið verður úr tveimur réttum lausnum og verður báöum Jþeim heppnu send saga Oldunnar 1100 ár Sásemvanntttverðlauna f yrir síðustu krossgátu er Ragnar Emttsson, HUði Eyrarbakka. Réttar lausnir sendist merktar: Ritstjórn Sjómannablaðsins Víkings, Krossgáta LaugavegiSl lOlReykjavík 50 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR