Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Blaðsíða 8
í samtali við Sæmund Guðvinsson kemur Matthías Johannessen skáld og ritstjóri víða við. Hann ræðir kynni sín af sjónum og sjómönnum, viðtalið sem hneykslaði Hvatarkonur, Úranus heimtan úr helju, auðlindagjald og sambúð skálds og ritstjóra, svo eitthvað sé nefnt g er alinn upp við dálítið sérstakt umhverfi í vesturbænum. Þetta var hlýlegt umhverfi og alveg nýtt nema gömlu húsin. í þessu umhverfi var mikið af mönnum sem störfuðu við sjó- mennsku. Maður var alinn upp við það að bera virðingu fyrir sjó- mönnum og það gerði ég alltaf. Mér fannst sjómennskan heillandi og þessi heimur blandaðist saman við þennan nýja borgaralega heim sem vex síðan upp í vesturbænum. Til dæmis við Hávallagöt- una þar sem ég bjó var sambland af opinberum starfsmönnum og fólki sem sá sér farboða með öðrum hætti. í húsinu við hliðina á okkur bjó Jón Bogason sem mér þótti ó- skaplega skrautlegur þegar hann kom niður götuna f sínum ein- kennisbúningi sem bryti á Dettifossi. Þetta var í stríðinu og það ger- ist að Dettifoss er skotinn niður og Jón er meðal þeirra sem farast. Maður ólst upp við það að þekkja deili á sjómönnum sem fórust, ýmist af slysförum eða í stríðinu. Þetta var mér ungum dreng mjög mikið íhugunarefni, þessi barátta hvernig menn ættu að lifa af og ég dróst að því að sjómenn gegndu hættulegu starfi, gríðarlega merkilegu og maður ætti að bera virðingu fyrir þessu starfi. í Ijóðabók minni, Morgunn í maí, er Ijóð um Jón Bogason og þeg- ar hann ferst. Maður elti stríðið og þá ekki síst stríðið á sjónum.Til er mynd af mér þar sem ég er að horfa á Fróða þar sem hann kem- ur til hafnar með líkkisturnar á dekki og séra Árni Sigurðsson stendur á stýrishúsinu og er að blessa mannskapinnn. Þetta verður mér allt minnisstætt og í mínum huga voru þetta fallnar hetjur. Þetta Ijóð um Jón er ort löngu eftir að hann fórst, en það má sjá f þessari bók hvers konar endurminningar fylgja þessum strák í vesturbæn- um inn í lífið. Á þessum árum var maður við hugann við það og foreldrar manns einnig, hvernig maður gæti tengst merkilegri arfleifð, gæti vaxið inn í þessa arfleifð. Þegar ég var strákur var ég sendur í sveit 8 - Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.