Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Nįttśrufręšingurinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Nįttśrufręšingurinn

						4                                        NÁTTiímujni

menjar eftir horfna hveri, rauðleitar dyngjur, hver af annari,

fullar af heitum eða sjóðandi leirhverum, hverfa þær ýmist á

þessum staðnum og koma upp á öðrum. Til austurs takmarkast

útsýnið af lágum hálsum, en á bak við þá gnæfir Hekla.

Snjórinn á Heklu var að mestu runninn. En hvað hún var drottn-

ingarleg, svipstór og þögul, eins og dimmblá keila; var sem hún

hefði yfir sér dökkbláa heklu, og glitaða allavega löguðum fanna-

blettum. Á milli hálsanna og Haukafells liggur víðáttumikið hérað,

grösugur dalur, frá norðri til suðurs; væri sá dalur fagur, ef hann

væri ekki eins votlendur og hann er. Eftir honum falla tvö vatns-

föll, Hvítá og Tungufljót; en lítt sér til þeirra frá Geysi, því að

farvegirnir eru svo djúpir, að bakkarnir skyggja á. Bláfell ber við

himni, fallegt fjall, einstakt, með þverhnýptum hömrum. Til suð-

urs skyggir fjallaklasi fyrir útsýnið, og er hann ekki eins til-

komumikill. —

Sólin var komin upp. Nú fannst mér vel við eigandi, að hver-

irnir færu að gera einhverja tilbreytingu í morgunkyrrðinni.

Eg gekk þá að hver þeim, er Strokkur heitir, til þess að

skoða hann, mér til skemmtunar. Eg vissi nóg dæmi til, að hægt

væri að erta hann, og fá hann til að gjósa, með því að kasta í hann

grjóti; en eg vildi ekki hafa svo ljótt athæfi á samvizkunni; held-

ur vildi eg bíða og skoða því grandgæfilegar þennan merkilega

hver; hann hefir langt um meiri goskraft að tiltölu en Geysir.

Strokkur er 150 álnir fyrir sunnan Geysi. Um hveropið er

lóðrétt kísilklöpp, eins að lit og lögun og Geysis-skálin. Skálar-

barmurinn var einu sinni talsvert hærri; en einhverjir útlendir

ferðalangar hafa gert sér það að leik, að brjóta úr barminum og

varpa í hverinn til þes að flýta fyrir gosum hans; er all-stórt

skarð í barminn á einum stað; veldur það því, að vatnssúlan nær

ekki sínu rétta lagi, þegar hann gýs.

En Strokkur hefir nú í 8 ár unnið að því ótrauður að drepa

í skarð þetta, og tekizt það að nokkru leyti. Þegar eg kom að

honum, var vatnið 3*/J2 &hn fyrir neðan skálarbarm, og sauð og vall

ákaflega, svo að eg hefi aldrei séð neitt svipað því. Gufan gaus

óaflátlega upp með þeim feikna krafti, að yfirborðið á vatninu

varð að einu freyðandi löðri. Eg færði mig svo nærri honum, sem

eg gat, og hallaði mér fram yfir opið, og sökkti mér algjörlega

niður í, að virða fyrir mér hamaganginn í vatninu. En í sömu

andránni heyrði eg ákaflega dynki niðri í jörðinni; mér þótti sem

þeir kæmu frá Geysi, svo að mér varð litið þangað; datt mér í

hug, að þeir kynnu að vera forboðar fyrir því, að nú ætlaði hann

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32