Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Nįttśrufręšingurinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Nįttśrufręšingurinn

						NÁTTÚRUFR.                                             7

Hreíndýr á Reykjanesskaga.

Það mun hafa verið árið 1771, að hreindýrum var hleypt á

land á Reykjanesskaga og sleppt í hraunin fyrir sunnan Hafnar-

fjörð. Voru hreindýr þessi fengin frá Finnmörku. Hreindýrin

munu hafa þrifizt þar vel og talsvert fjölgað. Er þeirra oft getið

á skaganum síðan, og hafa stundum veiðst þar til muna. Þorvald-

ur Thoroddsen hyggur, að þau hafi flest fallið harða veturinn 1880

—1881, en eftir það hafi þeim nokkuð fjölgað aftur. Segir hann, að

1890 hafi sézt 15—20 hreindýr í einum hóp nærri Bláfjöllum.

(Lýsing Islands II, bls. 457—58).

Síðar munu eigi hafa komið svo harðir vetur, að hreindýrun-

um hafi stafað veruleg hætta af. Þó er nú svo komið, að hreindýrin

munu vera orðin afar fágæt hér á skaganum, ef ekki alveg horfín.

Síðustu sumrin hefi eg farið mjög víða um fjalllendin og

hraunin á Reykjanesskaga, gengið upp á flest fjöllin, og notið út-

sýnis með góðum sjónauka yfir héruðin umhverfis þau; en hvergi

hefi eg getað komið auga á hreindýr, og ekki heldur fundið horn

eða bein af hreinum. Ýmsa kunnuga menn, sem fengizt hafa við

smalamennsku, hefi eg líka spurt um hreindýrin, og kváðust þeir

ekki hafa séð þau síðustu árin.

Guðmundur Jónsson, frá Setbergi í Hafnarfirði, er manna

kunnugastur í hraununum og f jöllunum suður og austur frá Kald-

árseli. Hann hefir sagt mér, að hann hafi séð 35 hreindýr í hóp

uppi á Lönguhlíðarfjöllum fyrir vestan Brennisteinsfjöll. Það var

um haustið í réttum, árið 1880. Um aldamótin síðustu sá hann 2

hreindýr seint í maímánuði; var það bæði kýr og tarfur, og fylgdi

þeim kálfur. Það var fyrir neðan Skörðin, fyrir vestan Þrívörðu-

hnúk. Smalahundur Guðmundar hljóp á eftir hreinunum, og flýðu

dýrin upp brekkuna; varð þar brattur skaf 1 á leið þeirra. Runnu

þau upp skaflinn, en þar varð kálfurinn seinfærari og hrataði

niður skaflinn aftur. Sótti þá hundurinn að honum. Snéru þá full-

orðnu dýrin í skyndi aftur. Réðist tarfurinn móti hundinum með

miklum ofsa og reyndi að stanga hann. En kýrin lagði af stað

með kálfinn upp skaflinn á meðan; lét hún hann ganga við hlið

sér, brekkumegin, svo að hann hefði stuðning af sér, meðan þau

sneiddu fönnina. Loks tókst Guðmundi að aftra hundinum. Tók

þá tarfurinn á rás eftir hinum dýrunum. — Guðmundur kveðst

sjálfur ekki hafa séð hreindýrin hér á skaganum eftir þetta.

Á árunum 1885—'90 voru tvö hreindýr skotin hjá Sandfelli,

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32