14 NÁTTÚRUFR. Ýmsir muntr úr islenzkum leir. verkum frá náminu. T>óttu sum þessi sýnishorn betri til leiriðn- aðar, en leirtegundir þær, sem völ var á í I>ýzkalandi. Komst verksmiðjustjórinn svo að orði, að með slíku efni mætti skapa sér mikla yfirburði í þeirri iðn. I>egar Guðmundur hafði lokið náminu á listaskólanum, hafði hann tilbúnar margar leirmyndir, er hann hafði gjört úr er- lendum leir. Kom hann þeim að á sýningu, og seldust þær fyrir ]800 mörk. Notaði hann það fé sem farareyrir til þess að fara námsferð til Italíu, Grikklands og Tyrklands. I þessari för fékk hann gott tækifæri til að kynnast leiriðnaði í þessum löndum, og kynntist honum þar líka í frwmlegustu og einföldustu mynd, þar sem hann er rekinn með einföldum útbúnaði og ódýrum tækjum, og þó með góðum hagnaði. Þá þóttist hann hafa kynnst þeim tækj- um og útbúnaði, er væri við okkar hæfi, meðan verið væri að byrja og reyna sig áfram í þessari iðnaðargreín. Festist þá sá á- setningur hans, að reyna það sem unt væri til að nema. leiriðnað- inum land hér heima. 192627 dvaldi Guðm. hér heima og leitaði hófanna um fé til framkvæmda. Alþingi sá sér þá ekki fært að liðsinna honum í þessu máli. Og þeir voru fáir hér, sem vildu ljá slíkri nýung lið- sinni, aðeins örfáir greiddu Iítilsháttar fyrir því að hann gæti frekari tilraunir gert. Safnaði þá Guðm. 7080 leirsýnishorn- um. Dvaldi hann 192728 erlendis og gerði fullnaðar tilraun á