Loftmyndfrá Landmælingum íslands af Þjórsá og umhverfi Traustholtshólma sem er hér fyrir miðri mynd. Loftmyndin er tekin í ágúst 1978 en síðan hafa nokkrar breytingar orðið á umhverfi árinnar á þessum slóðum. I Árnessýslu: Egilsstaðir, Villingaholt, Efri-Gróf, Mjósund, Forsæti, Ferjunes, Efri- og Syðri-Sýrlækur, Traustholt, Selpartur, Hólmasel, Arabær, Arabæjarhjáleiga, Krók- ur og Fljótshólar. Allt og sumt sem Jarðabók Árna Magnús- sonar og Páls Vídalín hefur að segja um selveiði í Þjórsá er bundið við tvær jarðir, Fljótshóla og Traustholt. Um Fljótshóla segir: Selveiði hefur áður verið í Þjóssá, hefur ekki brúkast í manna minni, en áin 208 hefur borið sand í nótlagnirnar so menn halda nú þessa selveiði ekki gagnvæna þó iðkuð væri." (II bls. 4.) Um Traustholt segir: Selveiðivon sæmileg og brúkast árlega, fylgir þessi selveiði Traustholtshólma, en ekki öðrum pörtum." (II bls. 8.) Þegar Jarðabókin er tekin saman fyrir Fljótshóla og Háf, 1708-1709, eru báðar jarðirnar í eigu Skálholtsstóls. Þórður Þórðarson sem var ráðsmaður Skálholts- stóls 1712 bjó lengi í Háfi og dó þar 1747. ^i>