Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Nįttśrufręšingurinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Nįttśrufręšingurinn

						djúpstraumar. Þeir fara sér hægt og er erfitt

að mæla þá. Landslag hafsbotnsins hefur

mikil áhrif á rennsli straumanna. Djúp-

straumar hafsins stjórnast af massajafnvægi

og hitajafnvægi hafsins. Þar sem kalt vatn

sekkur, eins og t.d. í Norður-Atlantshafi,

kemur í staðinn hlýtt vatn frá miðbaug sem

yfirborðsstraumur(Golfstraumurinn).

Á jörðinni eru tveir aðalmyndunarstaðir

djúpsjávar. Annar er í Noregs- og Græn-

landshafi og hinn í Weddelhafi við Suður-

skautslandið. í upphafi er það kuldinn í

andrúmsloftinu sem kælir sjóinn, síðan frýs

vatnið og skilur eftir saltari, kaldari og

þyngri sjó sem sekkur og myndar djúpsjó

Norður-Atlantshafsins og djúpsjó Suður-

skautslandsins. Myndun djúpsjávar í Norður-

Atlantshafi nemur um 10 x 106 mVsek.

Samskonar djúpsjávarmyndun á sér ekki

stað í Norður-Kyrrahafi vegna þess að þar

er selta of lítil og yfirborðssjórinn nær ekki

þeim eðlisþunga sem til þarf.

Streymi djúpsjávar á okkar tímum

stjórnast aðallega af hitamun. Rannsóknir á

öðrum tímabilum jarðsögunnar benda þó til

þess að t.d. á Krítartímabilinu hafi hringrás

djúpsjávarstrauma fyrst og fremst stjórnast

af seltumun. Ástæðan er sú að þá var hafið

almennt mun hlýrra en nú er.

Eins og áður hefur verið getið er lóðrétt

blöndun í hafinu takmörkuð nema á þeim

svæðum þar sem djúpsjór leitar upp á

yfirborðið. Iðustraumar geta samt sem áður

blandað saman yfirborðssjó og djúpsjó. Þau

svæði hafa hæst næringarstig þar sem

næringarríkur djúpsjórinn leitar upp á yfir-

borð. Þar eru gjöfulustu fiskimið heimsins

og er eitt slíkt svæði við strendur íslands.

Komið hafa fram kenningar um að

breytingar á hafstraumum valdi hlýskeiðum

eða jökulskeiðum. Bandaríski jarðefna-

fræðingurinn Wallace Broecker við

Columbiaháskóla hefur bent á að verulegur

varmaflutningur eigi sér stað frá miðbaug til

norðlægra svæða með hafstraumum.

Stöðvist þessi varmaflutningur er hætta á að

veðurfar kólni á norðurhveli þannig að ísöld

skelli á. Má nefna mikilvægi Golfstraumsins í

þessu sambandi, en hann flytur varma til

Norður-Atlantshafs. Broecker telur einnig

að hlýnun í andrúmslofti jarðar vegna

gróðurhúsaáhrifa kunni að breyta strauma-

kerfi heimshafanna (Graedel og Crutzen

1993). Rannsóknir á ískjörnum úr Græn-

landsjökli sýna að loftslag jarðarinnargetur

breyst mjög hratt frá hlýskeiði yfir í ísöld,

jafnvel á nokkrum áratugum (Calvin 1998).

Þá er talið að Golfstraumurinn geti hugsan-

lega breytt um stefnu og hætt að flytja

varma til Norður- Evrópu (Calvin 1998).

Þessar kenningar kalla á frekari rannsóknir á

straumakerfi hafsins og hugsanlegum lofts-

Iagsbreytingum. Jafnvel er mögulegt að í

framtíðinni verði hafstraumum og þar með

loftslagi jarðarinnar að einhverju leyti

stjórnað til þess að koma í veg fyrir

óæskilegar loftslagsbreytingar.

¦ LIFIÐ I HAFINU

Lífið í hafinu er afar fjölbreytt og dreifist

ójafnt um hafið (Lalli og Parsons 1993).

Mikill hluti þess er smásæjar plöntur og dýr.

Oft er því haldið fram að frumframleiðsla

hafsins sé mjög mikil. í reynd er frum-

framleiðsla hafsins einungis örlítið meiri en í

eyðimörkum jarðar. Þau svæði eru fremur fá

þar sem lífræn framleiðsla hafsins er í raun

og veru ríkuleg. Þannig framleiðir minna en

einn tíundi hluti hafsvæða jarðarinnar um

níu tíundu hluta af öllu lífrænu efni hafsins.

Lífríkið í hafinu er mjög háð hitastigi.

Hitastigið stjórnar hraða efnahvarfa sem

aftur á móti hefur áhrif á myndun ensíma í

frumum lífvera, sem hefur síðan áhrif á

vaxtarhraða, nýliðun og virkni tegunda.

Sjávarlífverur vaxa hraðar í hitabeltinu en

við pólana. Á móti kemur að meira er af

næringarefnum í köldum sjó, þannig að fleiri

sjávarplöntur vaxa á köldum svæðum.

Selta hafsins hefur einnig áhrif á lífverur.

Lífverur við ströndina flytja sig um set eftir

því hvernig seltuhlutfallið breytist yfir árið

og því hversu vel þær hafa aðlagast

seltubreytingum. Lífverur sem eru fastar við

botninn, eins og hrúðurkarlar (Balanus

balanus), loka t.d. skel sinni og hætta að

nærast ef seltuhlutfall verður óhagstætt.

Hrúðurkarlar  þola  þannig  miklar  seltu-

243

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 177
Blašsķša 177
Blašsķša 178
Blašsķša 178
Blašsķša 179
Blašsķša 179
Blašsķša 180
Blašsķša 180
Blašsķša 181
Blašsķša 181
Blašsķša 182
Blašsķša 182
Blašsķša 183
Blašsķša 183
Blašsķša 184
Blašsķša 184
Blašsķša 185
Blašsķša 185
Blašsķša 186
Blašsķša 186
Blašsķša 187
Blašsķša 187
Blašsķša 188
Blašsķša 188
Blašsķša 189
Blašsķša 189
Blašsķša 190
Blašsķša 190
Blašsķša 191
Blašsķša 191
Blašsķša 192
Blašsķša 192
Blašsķša 193
Blašsķša 193
Blašsķša 194
Blašsķša 194
Blašsķša 195
Blašsķša 195
Blašsķša 196
Blašsķša 196
Blašsķša 197
Blašsķša 197
Blašsķša 198
Blašsķša 198
Blašsķša 199
Blašsķša 199
Blašsķša 200
Blašsķša 200
Blašsķša 201
Blašsķša 201
Blašsķša 202
Blašsķša 202
Blašsķša 203
Blašsķša 203
Blašsķša 204
Blašsķša 204
Blašsķša 205
Blašsķša 205
Blašsķša 206
Blašsķša 206
Blašsķša 207
Blašsķša 207
Blašsķša 208
Blašsķša 208
Blašsķša 209
Blašsķša 209
Blašsķša 210
Blašsķša 210
Blašsķša 211
Blašsķša 211
Blašsķša 212
Blašsķša 212
Blašsķša 213
Blašsķša 213
Blašsķša 214
Blašsķša 214
Blašsķša 215
Blašsķša 215
Blašsķša 216
Blašsķša 216
Blašsķša 217
Blašsķša 217
Blašsķša 218
Blašsķša 218
Blašsķša 219
Blašsķša 219
Blašsķša 220
Blašsķša 220
Blašsķša 221
Blašsķša 221
Blašsķša 222
Blašsķša 222
Blašsķša 223
Blašsķša 223
Blašsķša 224
Blašsķša 224
Blašsķša 225
Blašsķša 225
Blašsķša 226
Blašsķša 226
Blašsķša 227
Blašsķša 227
Blašsķša 228
Blašsķša 228
Blašsķša 229
Blašsķša 229
Blašsķša 230
Blašsķša 230
Blašsķša 231
Blašsķša 231
Blašsķša 232
Blašsķša 232
Blašsķša 233
Blašsķša 233
Blašsķša 234
Blašsķša 234
Blašsķša 235
Blašsķša 235
Blašsķša 236
Blašsķša 236
Blašsķša 237
Blašsķša 237
Blašsķša 238
Blašsķša 238
Blašsķša 239
Blašsķša 239
Blašsķša 240
Blašsķša 240
Blašsķša 241
Blašsķša 241
Blašsķša 242
Blašsķša 242
Blašsķša 243
Blašsķša 243
Blašsķša 244
Blašsķša 244
Blašsķša 245
Blašsķša 245
Blašsķša 246
Blašsķša 246
Blašsķša 247
Blašsķša 247
Blašsķša 248
Blašsķša 248
Blašsķša 249
Blašsķša 249
Blašsķša 250
Blašsķša 250
Blašsķša 251
Blašsķša 251
Blašsķša 252
Blašsķša 252
Blašsķša 253
Blašsķša 253
Blašsķša 254
Blašsķša 254
Blašsķša 255
Blašsķša 255
Blašsķša 256
Blašsķša 256