Rúmfræðilegir þættir kúlulögunarinnar hafa mikil áhrif á efnafræði C60-sameind- arinnar. Til dæmis getur verið ógerlegt að tengja tvo atómhópa á tvö aðliggjandi kolefnisatóm kúlunnar vegna stærðar þeirra. Vetnisatóm (H) eru þó nægjanlega iítil þannig að mögulegt er að tengja þau við öll kolefnisatóm C60 og mynda C60H60. Enn sem komið er hefur þó aðeins verið hægt sýna fram á tilvist C60H36 (Haufler o.fl. 1990). Flúrgas, F2, hvarfast við C60 og myndar blöndu af C60Fn (n = 1-60) efna- samböndum en tilvist C60F60 er þó ekki enn fullsönnuð (Holloway o.fl. 1991, Selig o.fl. 1991). Tekist hefur að einangra og ákvarða byggingar nokkurra brómefnasam- banda eins og C60Br24 (Tebbe o.fl. 1992), C60Br8 og C6QBr6 (Birkett o.fl. 1992). I byggingu C60Br24 (5. mynd a) raðast sex hópar fjögurra brómatóma oktahedral um kúluna. Vegna stærðar brómatómanna er ekki hægt að tengja fleiri brómatóm við kúluna. Hjá C60Br6 og C6()Brg eru brómatómin hins- vegar á einu svæði kúlunnar. 5. mynd. Sameindarbyggingar a) Cú(fir24 og b) C6l)(Pt(PEtJ2)6. Til frekari glöggvunar eru etýlhópar Pt(PEtJ2 ekki hafðir með á myndinni. C er grænt, Pt gult, P rautt og Br blátt. C60Br8 Þessi svæðisbundna tenging brómatómanna hefur einnig komið fram hjá öðrum efna- samböndum C6() (Fagan o.fl. 1992, Olah o.fl. 1992). Þetta bendir til þess að kúlulaga sam- stæð (conjugated) C=C-kerfi 120