ranadýr sem hér hefur verið lýst endurnýjuðu jaxlana á sama hátt og þeir. Jaxlar skögultanna voru með ávala hnúða í stað fellinga (sjá 2. mynd). Fræðiheitið Mastodon þýðir brjóstatanni". Höfundur þess, Cuvier, líkti hnúðunum við konubrjóst. (Hann var ekki Frakki fyrir ekkert," skrif- ar Carrington (1958).) Skögultannar lifðu í Amer- fku þar til fyrir nokkrum óldum eða árþúsundum. Trúlega áttu menn þátt í að útrýma þeim, í það minnsta verður að telja víst að þeir hafi kynnst þeim. í arfsögnum margra indíána er greint frá stórum dýrum með langt nef og í Mexíkó eru fornar myndir af dýrum sem líkjast fílum. Arið 1568 réðust spænsk herskip á sex ensk herskip í höfn við Mexíkóflóa og sökktu fjórum þeirra svo liðlega hundrað sjóliðar stóðu skip- reika á ströndinni. Þeir hrökt- ust víða um meginland Norður- Ameríku og aðeins þrír áttu afturkvæmt til Evrópu. Einn þeirra, David Inrgam, sagði sögu sína sem var víst lítt trúverðugri en endurminningar Mtinchhausens baróns og hefur því verið lítill gaumur gefinn. Samt stenst margt í náttúrulýsingum hans. Nærri hjörðum vísunda kvaðst hann hafa séð dýr sem af lýsingunni að dæma voru brúnleitir og síðhærðir fílar. Hlýtur að teljast ósennilegt að hann hafi ráðið yfir nægri þekkingu til að skálda það. - Jafnvel eru til sögur um það að indíánar hafi greint þriðja forseta Bandaríkjanna, Jefferson, frá þessum dýrum upp úr 1800. FíLAR, ELEPHANTIDAE Fornir og nýir fulltrúar fílaættar eru greindir frá öðrum ranadýrum á gerð jaxlanna, sem eru alsettir fellingum. Eins 12. mynd. Skögultanni, Mastodon americanus. Mynd eftir Charles R. Knight. (Carrington 1958.) 1 'v ' ..r^ v ¦'?'<¦'., " .¦ \Í^/'- /Jí( *_^^^BfcB_i__^__jíBS«fí' ¦i í' $-* |£|P ^^¦iw HyJ^t :-ájá^lií ^iaS^ /*..' wfl& ¦¦ , **&>* '*¦' J' M. - 13. mynd. Ættfaðir fi'lattar, þaktanni, Stegodon ganesa. Mynd eftir Maurice Wilson. (Carrington 1958.) virðast jafnvel elstu dýr þessarar ættar hafa haft lárétt tannskipti eins og lýst hefur verið hjá nútímafílum, þótt sum hafi ekki haft nema þrjú mengi jaxla til skiptanna. Elstu dýr af fílaætt sem menn þekkja eru þaktannarnir, Stegodon, við það kenndir að fellingarnar á jöxlunum minna á burstaþak á húsi (13. mynd). Elstu leifar þeirra eru frá síðasta tíma tertíertímabils, plíósen. Af þaktanna, eða einhverju náskyldu dýri, þróuðust tvær greinar og endar önnur í afríkufíl, hin í indlandsfíl. Af hliðargreinum eða kvistum á afríku- 175