Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 11

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 11
Bjarni E. Guðleifsson og Rögnvaldur Ólafsson: Athugun á ánamöðkum í túnum í Eyjaíirði INNGANGUR Ánamaðkar eru taldir gagnlegir ibúar í ræktarlandi. Starfsemi þeirra flýtir m. a. rotnun lífrænna efna, bætir eðlis- byggingu, eykur loftrými og bætir vatnsbúskap jarðvegsins. Þannig getur starfsemi ánamaðka óbeint aukið vöxt og uppskeru jarðargróða, og er fjöldi þeirra og magn stundum notaður sem mælikvarði á ræktunarástand lands (Edwards og Lofty 1977). Hérlendis hafa fundist 12 tegundir ánamaðka (Backlund 1949; Lindroth o. fl. 1973), en einungis sumar þeirra dafna í ræktarlöndum. Á árunum 1972—1974 rannsökuðu sænskir og norskir vísindamenn útbreiðslu ána- maðkategunda á Islandi (Bengtson o. fl. 1975). Báru þeir saman ánamaðkateg- undir í mismunandi vistkerfum. Þeir fundu 8 tegundir ánamaðka i görðum cn einungis 5 tegundir í túnum, og var meiri sveifla í tegundasamsetningu og fjölda ánamaðka í túnum en i öðrum vistkerfum sem þeir rannsökuðu. 1 sum- um túnanna fundust engir ánamaðkar. Hér verður greint frá athugun sem gerð var sumurin 1978 og 1979 á fjölda og tegundasamsetningu ánamaðka í þremur túnspildum og einum garðbletti að Möðruvöllum i Hörgárdal. LÝSING RANNSÓKNAR Ánamöðkum var safnað i þremur túnum í landi Tilraunastöðvarinnar á Möðruvöllum og til samanburðar var ánamöðkum líka safnað úr grasflöt i trjágarði sunnan íbúðarhúss að Möðru- völlum II. Einu sinni (05/07/1978) voru líka tckin sýni úr trjálundi norðan við Mörðuvallaklausturskirkju, og eru þessi sýni umfjölluð með öðrum sýnum úr trjágarðinum. Túnin þrjú sem um ræðir eru ólik að gerð og uppruna og nefnast þau Slættir, Hólmi og Miðmýri. Slættir er talið gott tún, þurrlent, í góðri rækt, gefur árvissa og mikla upp- skeru og er oftast slegið snennna. Hólmi er sjálfslétt og að mestu sjálfræktað tún á bökkum Hörgár, er uppskerumikið og yfirleitt slegið seint. Miðmýri er þurrkuð Náttúrufræöingurinn, 51 (3), bls. 105—113, 1981 105

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.