1. tafla. Hámarksvaxtarhitastig helstu flokka lífvera. main groups of organisms. Maximum growth temperature for Hópur Hámark °C Dýr Fiskar fish Skordýr insects Krabbadýr Crustacea Plöntur Háplöntur vascular plants Mosar bryophytes Heilkjarna örverur Frumdýr Protozoa Pörungar algae Sveppir fungi Bakteríur Blágrænir þörungar Cyanobacteria Ljóstillífandi bakteríur photosynthetic bacteria Venjulegar bakteríur Eubacteria Fornbakteríur Archaebacteria 38 45-50 49-50 45 50 56 55-60 60-62 70-73 70-73 85 110 og ófrumbjarga bakteríur af ýmsum gerðum. Best þekktu bakteríurnar í þessum hópi eru vafalítið Thermus- tegundir en þær eru ófrumbjarga Gram-neikvæðar bakteríur sem eru mjög algengar í basískum vatnshver- um víða um heim (Jakob K. Kristjáns- son og Guðni Á. Alfreðsson 1983). Allmargar tegundir hverabaktería sem geta vaxið yfir 85°C hafa verið einangraðar á síðustu árum. Þær hafa allar reynst tilheyra nýjum flokki bakt- ería, sem kallast Archaebacteria eða fornbakteríur" (Woese o.fl. 1978). Til Archaebacteria teljast einnig met- hanmyndandi bakteríur og saltkærar bakteríur. Þessi hópur baktería er mjög frábrugðinn hinum eiginlegu bakteríum (eubacteria). Efnasamsetn- ing helstu byggingarhluta svo sem frumuhimnu og frumuveggs er t.d. mjög mismunandi hjá þessum tveimur hópum. Archaebacteria eru taldar vera a.m.k. jafnfjarskyldar venjulegum bakteríum eins og þær síðarnefndu eru fjarskyldar heilkjörnungum. Margar hinna háhitakæru fornbaktería" voru fyrst einangraðar úr leirhverum á ís- landi en hafa síðan fundist víðar (Stett- er og König 1983). Eina lífveran sem með vissu getur vaxið við hærra hitastig en 100°C er bakterían Pyrodictium occultum. Hún var einangruð árið 1982 úr neðansjáv- arhver við strönd ítalíu og hefur kjör- hitastig 105°C og hámarkshitastig um 110°C (Stetter 1982). HVERIR Á ÍSLANDI ísland mun vera eitt mesta jarðhita- land í veröldinni. Talið er að bæði heildarhitaútstreymið og samanlagt flatarmál jarðhitasvæðanna sé meira 51