Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Nįttśrufręšingurinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Nįttśrufręšingurinn

						rænum efnum eða brennisteinsvetni

að halda. Chloroflexus myndar því

gjarnan þunnt (1-2 mm) grábleikt

lag, 5-9 mm undir yfirborði þörunga-

lagsins.

Ýmsar aðrar gerðir baktería hafa

verið einangraðar úr svona hvera-

gróðri. Mest hefur verið unnið með

bakteríur af ættkvíslinni Thermus, sem

eru Gram-neikvæðar, staflaga frumur

og mynda einnig oft langa þræði. Þetta

eru loftháðar rotverur, sem finnast í

miklu magni í öllum basískum vatns-

hverum við 50-85°C (Jakob K. Krist-

jánsson og Guðni Á. Alfreðsson

1983). J?ær innihalda jafnan mikið af

karoten efnum og eru því gular eða

appelsínugular að lit. Þær vaxa sjaldan

í svo miklu magni í hverunum að gróð-

urinn verði sýnilegur með berum aug-

um. Þó kemur fyrir að þörungagróður-

inn verður appelsínugulur eða bleikur

á börmum hveranna. Þetta stafar af

því að Thermus þolir mun hærra hita-

stig (Topt 70-75°C) en blágrænu

þörungarnir (Brock 1978). Ef veru-

legar sveiflur verða á hitastigi, sem oft

getur orðið í hverum, og of heitt verð-

ur fyrir þörungana þá drepast þeir en

rotbakteríur eins og Thermus ná sér á

strik. Grómyndandi bakteríur, bæði

loftháðar og loftfælnar, hafa verið ein-

angraðar úr hveravatni (Cometta o.fl.

1982). Einnig hafa fundist þar súlfat-

afoxandi bakteríur (Sandbeck og

Ward 1982), methanmyndandi bakter-

íur, vetnisoxandi bakteríur og fleiri

gerðir (Jakob K. Kristjánsson o.fl.

1985, Stetter o.fl. 1981). Ekki hefur

þó enn tekist að einangra bakteríur,

sem geta vaxið við hitastig yfir 85°C,

úr basískum vatnshverum. Þær virðast

þó vissulega vera til staðar í þessum

hverum. Það má m.a. sjá á því að ef

smásjárgler er haft í hver í nokkra

daga þá setjast bakteríur á gierið og

fjölga sér þar (Brock 1978).

Vatnshverir á háhitasvæðum

Sums staðar á háhitasvæðum getur

vatnið í basískum hverum innihaldið

mikið magn af uppleystu brennisteins-

vetni og við það myndast allt önnur

lífsskilyrði en almennt gerist í vatns-

hverum. Brennisteinsvetnið (H2S)

verkar hindrandi á sumar tegundir

eins og t.d. blágrænu þörungana sem

virðast ekki þola meiri styrk en um

5uM H2S (Castenholz 1976). í staðinn

koma bakteríur sem geta oxað H2S og

þannig unnið orku. Ef styrkur af upp-

leystu H2S er undir 60uM og hverinn

liggur vel við sól þá verður Chloroflex-

us gróðurinn yfirgnæfandi og getur

myndað miklar breiður af grábleikum

eða jafnvel ryðlituðum þráðum sem

bylgjast í straumnum (3. mynd).

Greinilegt er að við þessar aðstæður

vex Chloroflexus með H2S-háðri ljós-

tillífun því-að gróðurinn nær oft langt

upp fyrir efri hitamörk blágrænu þör-

unganna (Jakob K. Kristjánsson og

Guðni Á. Alfreðsson 1983). Þar er

enga orkugjafa að hafa sem geta við-

haldið svo miklum gróðri nema

brennisteinssvetnið. Einnig er ljóst að

Chloroflexus er háður ljósinu því að í

sumum hverum getur gróðurinn næst-

um horfið á haustin ef sólarlítið er, en

blómstrar svo aftur á 1-2 sólardögum.

Vaxtarhraðinn getur því greinilega

verið mjög mikill við hagstæð skilyrði.

Þessi grábleiki gróður er sérlega áber-

andi í nokkrum hverum í Hveragerði

og nágrenni. í Baðstofuhver er mikill

Chloroflexus gróður og einnig í hver

sem er í túni Garðyrkjuskóla ríkisins í

Hveragerði svo og í einum hver sem

við höfum rannsakað talsvert og

nefndum HV-11 (Jakob K. Kristjáns-

son og Guðni Á. Alfreðsson 1983). Á

4. mynd sést vel hvernig hitastig og

brennisteinsvetni hefur áhrif á teg-

undasamsetningu (mælt sem hlutfall

karotena og blaðgrænu, eða gleypni

55

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100