m *% f/ , .V?* 6. mynd. Laugaköngulóin (Pirata piraticus) á þörungagróðri í heitum hver. - The spider Pirata piraticus on algal mat in a hot spring. (Mynd/photo Ólafur S. Andrésson) bakteríur sambærilegar við þær sem finnast í leirhverunum (Stetter, munn- legar upplýsingar). Ein lífvera setur þó oft talsverðan svip á slík gufuaugu, en það er græn- þörungurinn Cyanidium caldarium (Brock 1978). Þetta er heilkjarna þörungur, í raun litlaus, en inni í hon- um eru blágrænir þörungar, sem lifa þar samlífi og sjá um ljóstillífun. Cyan- idium vex við 4050°C og pH 4. Dæmi er um að hann lifi við allt að pH 0,5. Cyanidium myndar greinilega skær- græna bletti eða tauma í börmum gufuaugna og súrra hvera (9. mynd). Gufan heldur hæfilegum hita í börm- unum og þar nýtur jafnframt sólar. Cyanidium er algengur á hverasvæð- um og er t.d. sérlega áberandi í Krísu- vík, sérstaklega eftir 1-2 sólardaga. Hverir á sjávarbotni Hverir á sjávarbotni eru þekktir en hafa ekki verið mikið rannsakaðir þar til mjög nýlega, enda sjaldgæfir og erfitt að komast að þeim. Mikill áhugi skapaðist þó á slíkum rannsóknum eft- ir að háhitahverir fundust á miklu dýpi í Austur-Kyrrahafi. Bandaríkjamenn gerðu þangað nokkra leiðangra með dvergkafbátnum Alvin og uppgötv- 60