1. mynd. Frá Látrabjargi. Myndin er tekin úr fjörunni undir Bringnum. Barðið í baksýn. (Mynd/photo Friðrik Jesson). nefni eftir því sem þær hafa verið setn- ar fugli t. d. Slakkahilla, Miðlanda- hilla (lengsta samfelld hilla), Mela- kvappshilla, Kvíahillur. Lagskipti milli berglaganna eru lausari í sér en lögin sjálf og veðrast því fyrr og verða þá til þær syllur, sem búa fuglinum varpstöðvar. Þessi lag- skipti kallast ýmsum nöfnum eftir því sem þau eru breið. T.d. kallast þar sem mjóst er þræðingur og þá sam- kvæmt breidd pallur, sylla, hilla. Þar sem þræðingur slitnar nær því sundur, svo vart eða alls ekki verður þar hægt að fá fótfestur, nefnist svað. Hafi skriða fallið á þræðinginn, nefnist sá hluti urðarkast. Þá eru víða hellar í bjarginu. Merkastir eru Jötunaugun, sem eru 90 faðma niðri í Melabjargi. Litlir hellar nefnast skútar. Hvilftir inn í bergið nefnast hvöpp. Þá eru skvompur þar sem vatn hefur náð til 70