Slakkahillu var moldarsvörður vaxinn baldursbrá. Þar voru heimkynni fýls, lunda (Fratercula arctica) og álku en í brúninni voru nefskerar (=stuttnefja) á dreif. Utan í þriðja berglaginu voru nef- skerar á strjálingi en veggurinn var smákóróttur. Undir þriðja berglaginu tók við hallandi ber hilla ofan á berg- lagi nr. 4. Hér voru eingöngu langvíur. Milli neðri berglaganna sá ég á þrjá þræðinga og voru þeir þéttsetnir langvíu. Því miður skall yfir okkur dimm þoka, er við þann 18. júlí, vorum komnir á brún bjargsins og hélst hún allan daginn og hindraði okkur í að skoða bjargið af brún. Frá Stefni (um 200 m frá vitanum) og að Slakka hafði mér tekist að telja af brún. Af 134 svartfuglum (langvíu og nef- skera) voru 53 (39,6%) langvíur (þar af hringvíur 7,5%) og 81 (60,4%) nef- skeri. Var hér eigi um nægilegt magn né nógu stórt svæði af bjarginu að ræða til þess að nákvæm mynd fengist af því hversu fuglinn skipar sér í bjarg- ið. Ég hafði deginum áður talið í sama hluta bjargsins af sjó og þá var útkom- an þessi: Af 334 svartfuglum voru 279 langvíur eða 83,5% og 55 nefskerar eða 16,5%. Hringvíur voru 16 af 279 eða 5,7%. Styðja báðar þessar talning- ar það að langvían sé meir niðri í bjarginu en nefskerinn ofar. Báðar talningarnar, af brún og af sjó, gefa þessi svör: Alls 468 svartfuglar, þar af 332 langvíur eða 70,9% og 136 nef- skerar eða 29,1%. Hringvían er 20 af 332 eða 6,0%. Talning langvíu og nef- skera af sjó í öllu bjarginu var sem hér greinir: Látrabjarg: alls 660, þar af 529 langvíur (80,2%) og 131 nefskeri (19,8%). Bæjarbjarg: alls 362, þar af 283 langvíur (78,2%) og 79 nefskerar (21,8%). Breiðavíkurbjarg: alls 465, þar af 98 langvíur (21,0%) og 367 nef- Slakkahilla .JN*^ 2. mynd. Pversnið af Látrabjargi um Slakka. Tölur vísa til berglaga. 72