100-1 80H 60- 40H 20- W 4 3 2i Dvergbleikja Kuðungableikja Murta 408 370 216 Silableikja 293 1. mynd. Diphyllobothrium sýking í bleikjugerðum í Þingvallavatni. Sýkingarstig 1: engin sýking, stig 2: vottar fyrir sýkingu, stig 3: mikil sýking, stig 4: mjög mikil sýking. Sjá nánari skýringar á sýkingarstigum í kafla um aðferðir. - Frequency (%) o/Diphyllobothrium spp. in- fection in the charr morphs of lake Þingvallavatn. Infection stage 1: no infection, infst.2: trace of infection (larval cysts occur on stomach), inf.st. 3: heavy infection (clusters of larval cysts on intestines, esp. on stomach), inf.st. 4: very heavy infection (intestines co- vered and separate organs in- visible). GÖGN OG ADFERÐIR Alls voru 1299 bleikjur athugaðar m.t.t. Diphyllobothrium sýkingar. Sýking var metin með því að áætla þekju (%) þolhjúpa utan á innyflum (maga, skúflöngum og lifur). Sýkingu var skipt í fjóra flokka: Sýkingarstig 1 : engir þolhjúpar sjáanlegir; sýkingar- stig 2 : vottur af þolhjúpum (innyfli auðgreinanleg); sýkingarstig 3 : mikið af þolhjúpum (áberandi þyrpingar þol- hjúpa utan á maga, innyfli vel greinan- leg); sýkingarstig 4 : mjög mikið af þolhjúpum (öll innyfli þakin og ógreinanleg). Samgróningur líffæra í kviðarholi, þ.e. myndun bandvefs utan um inn- yfli, var metinn á efirfarandi hátt: Stig 1 : enginn samgróningur; stig 2 : vottar fyrir samgróningi (þunnur bandvefur utan um maga og lifur); stig 3 : mikill samgróningur (innyfli umlukin band- vefshjúp, en einstaka líffæri þó grein- anleg); stig 4 : mjög mikill samgrón- ingur (innyfli hulin þykkum bandvef). Upplýsingar um framkvæmd ann- arra mælinga á fiskunum er að finna í Hilmar J. Malmquist o.fl. (1985). NIÐURSTÖÐUR Afgerandi munur var á tíðni sýking- ar eftir bleikjugerð (1. mynd). Sýking var afar fágæt í dvergbleikjum (0,3 % sýktar) og kuðungableikjum (6,2 % sýktar), en mjög tíð í murtum (76,9 % sýktar) og sílableikjum (90,1 % sýkt- ar). Af sýktum murtum voru 32,5 % mikið sýktar (sýkingarstig 3 og 4), en 24,6 % sýktra sílableikja voru mikið sýktar (sbr. 1. mynd). Meira bar á sýkingarstigi 4 í sílableikjum (5,3 %) en murtum (1,2 %). Sýking jókst með vaxandi aldri murta og sílableikja (1. og 2. tafla). Tíðni samgróninga var á sama veg og tíðni sýkingar (2. mynd). Af fiskum 79