1. mynd. Útbreiðslusvæði E. mulleri (L.) í Urriðakotsvatni sumarið 1981. - The distribution ofE. mulleri (L.) in the lake Urriðakotsvatn in the summer of 1981. miklum áhrifum af gerð undirlagsins sem þeir vaxa á, lífsrými og straumum. Pví er ógerningur að byggja greiningu þessarar fylkingar á vaxtarformi, því það getur verið breytilegt innan sömu tegundar allt eftir því hverjar umhverf- isaðstæður eru. Stoðgrind svampsins er allflókin og ber uppi frumumassa dýrsins. Er hún sett saman úr stoðnálum, sem einkum eru gerðar úr kalki (svampar í sjó) eða kísil (svampar í vatni). Nálar þessar eru mjög mismunandi að gerð og gegna stóru hlutverki við flokkun svampa. Meðal vatnasvampa eru auk þess notaðar nálar dvalaformsins (gemmúlur) til greiningar. Röðun stoðnálanna er vel skipulögð og er stoðgrindin einkum í miðhlaupi (mesohyl), en svampar hafa ekki eigin- legt miðlag (mesoderm) (2. mynd). í miðhlaupinu er auk þess einna helst að finna archeocyta" (amöbur) sem éta fæðuagnir (phagocytosis) og geta um- breyst í aðrar sérhæfðar frumugerðir svampsins. Á innra borði miðhlaups (þ .e. innra borði útstreymisholsins (atrium)) er lag s.k. kragafrumna (2. 90