4. mynd. Skýringarmynd af einni einingu (leucon) svampsambýlis. Ch. Kragafrumulag (Choanosome"): Gi, innstreymisgangar; Gu, útstreymisgangar; Ih, innstreymishol; K, kragafrumuhol; M, miðgangur (atrial cayity); Me, miðhlaup (mesohyl); U, útstreymisop (osculum). Örvar sýna straunistefnu. (Teiknað eftir Florkin og Scheer (ritstj.), 1968). - Schematic drawing of one leucon of a sponge. (After Florkin and Scheer (ed.), 1968). á undirlagið. Þegar útlagið (dermal membrane) var myndað kallaðist það 1. stig. 2. stig: Önnur bylgja ósérhæfðra frumna flytur inn" eftir að 1. stigi lýkur. Umbreytast þessar ósérhæfðu frumur í margar frumugerðir og mynda kragafrumuholið (choanocyte cavity) og gangakerfi svampsins. Hér táknar það 2. stig þegar kragafrumu- hol er fullmyndað. 3. stig: Þriðja fylking ósérhæfðra frumna skríður svo út úr dvalaforminu og dreifist um kragafrumulagið (4. mynd) án þess að umbreytast frekar. Greina má 3. stig á því að stakar ósér- hæfðar frumur eru á víð og dreif um kragafrumulagið. Niðurstöður Spírun: Mikill meirihluti gemmúla var að spíra eða hafði spírað 22. apríl. Frá því að ísa leysti til þess dags var lágmarkshiti vatnsins vaxandi og hæsti vatnshiti í kringum 10°C (3. mynd). Myndun starfrænna vefja (ferillinn í gegnum 1., 2. og 3. stig) virtist ganga hratt fyrir sig. Þann 29. apríl var stoð- grind mynduð (1. stig, l.tafla, 5. mynd), auk þess sem merkja mátti kragafrumuhol í myndun, þ. e. 2. stigi ekki fulllokið. Níu dögum seinna, 8. maí voru öll þrjú stigin yfirstaðin. Vefjamyndun lauk á tímabilinu 29. apríl til 8. maí. Vöxtur: Vaxtarhraði sambýla nr. 1- 94