Ritfregn Nýlega kom út litprentaður bækl- ingur á ensku um Geysi í Haukadal. Helgi Torfason jarðfræðingur tók hann saman en Geysisnefnd gefur út. Bæklingurinn heitir The Great Geysir" sem útleggst Stóri Geysir á máli innfæddra og er 23 blaðsíður. Fremst í honum er saga Geysis rakin í stórum dráttum og síðan jarðfræði Geysissvæðisins og næsta nágrennis. Megin hluti ritsins fjallar um svæðið sjálft, jarðhitann og eðli hans og um kenningar um hvað valdi gosvirkni í hverum. Aftast er getið helstu örnefna og þar er listi yfir háplöntur sem finn- ast á svæðinu. Bæklingurinn er prýddur fjölda litmynda og einnig eru flest kort og skýringamyndir í litum og prentun er óvenju vönduð. Frágangur ritsins er allur hinn vandaðasti, höfundi og út- gefanda til hins mesta sóma og má segja að brotið hafi verið blað í útgáfu slíks fræðsluefnis fyrir almenning. Það er óskandi, að Geysisnefnd sjái sér fært að láta snara ritinu á íslensku, því að það á engu síður erindi við landann en erlenda ferðamenn. Haukur Jóhannesson