Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 15

Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 15
NÁTT ÚRUFRÆÐINGURINN 173 Hann er venjulega auðþekktur á rauðum, hvítdoppóttum hattin- um. Nefna má til viðbótar, að grasdrjólar, þ. e. svartir, harðir svepp- keppar í axi melgrass o. fl. grasa eru eitraðir. En víkjum aftur að íslenzku liljunum. Villilaukur (Allium olera- cium), frændi graslauksins og annarra matarlauka, vex hér villtur í túnum á Bessastöðum á Álftanesi, Bæ og Skáney í Borgarfirði og Skriðu í Hörgárdal. Hann ber löng blöð, sem eru hálfsívöl neðan- til, en flöt til oddsins. Blómin ljósrauð, dökkrákótt, fá og smá og sitja í gisnum sveip á stöngulendanum. Allmargir laukkenndir æxlihnappar sitja milli legglangra blómanna og tvö löng hulstur- blöð lykja um blómskipunina. Blöð villilauksins visna oft snemma. Laukbragð og dauf lauklykt er af jurtinni. Á Bæ í Borgarfirði vex laukurinn á allstóru jarðylssvæði í túninu. Heita þar Laukaflatir frá fornu fari. Liklega er villilaukurinn gamall slæðingur, ílendur fyrir löngu. Björn Halldórsson í Sauðlauksdal get- ur villilauksins í „Grasnytjum" 1783 og kveður hann orðinn ílendan í Bæ í Borgarfirði. Villilaukur mun vera forn lækningajurt og hefur e. t. v. verið fluttur inn til ræktunar í þeim tilgangi í fyrstu. Á 11. öld dvaldi ensk- ur trúboðsbiskup í Bæ í Borgarfirði um nær 20 ára skeið og munkar og trúboðar fengust oft við lækningar og gera raunar enn. Hugsanlegt er, að laukurinn hafi vaxið við jarðylinn í túninu á Bæ frá þeim tírna, a. m. k. virðist hann hafa vaxið þar lengi og örnefnið Laukaflatir er sennilega gamalt. — Að Skáney í Borgarfirði dvaldi þýzkur bartskeri og skurðlækn- ir, Lazarus Mattheusson að nafni, 1527—1570. Væri hugsanlegt, að hann helði ræktað og notað villilauk. Bæði Bessastaðir og Skriða eru forn höfuð- ból, og var þar snemma stunduð garð-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.