Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1933, Blaðsíða 21

Náttúrufræðingurinn - 1933, Blaðsíða 21
NÁTTÚRUFR. 15 ennþá. Þessi kuðungur er hinurn lina líkama þeirra til hlífðar, þegar þeir skríða hægfara um sjávarbotninn, um steinana í vötn- unum, eða á landi. Neðsti hluti líkamans er fóturinn eða flagan, sem þeir geta teygt úr eða dregið saman með sterkum vöðvum.. Ýmsir sniglar hafa þegarfram liðu stundir orðið að sjá á bak kuð- ungnum til þess að semja sig að nýjum lífskjörum, enda hafa þá hin nýju lífskjör verið þannig sniðin, að kuðungsins var ekki leng- ur þörf, eða hann var jafnvel dýrinu til hindrunar. Sniglar þeir,. sem misst hafa kuðunginn, hafa nefnilega annaðhvort vanið sig á að grafa (t. d. brekkusnigillinn), synda (svifsniglarnir)i eða sníkja í líkama dýra. Vængdoppa (Limacina heli- cina). Strikið sýnir stærð- ina. Aljjeng viö ísland, í kalda sjónum (við Norður- og, Austurland). Marfluga (Clione limacina) 2—4 cm. á lcngd. »Börðin« eru sundtæki. Algeng við ísland. Svifsniglarnir, sem sögðu skilið við ættarland sitt á marar- botni, og fóru að lifa í svifinu, urðu að breyta lifnaðarháttum og sköpulagi eftir þeim kjörum, sem nýja fósturjörðin, svif- heimurinn hafði að bjóða. Þegar upp í svifið kom, varð kuð- ungurinn til óþæginda, vegna þess að hann þyngdi dýrið, og hans var ekki lengur sú þörf, er áður hafði verið,, vegna þess að dýrið gat farið fljótar undan óvinum í sævardjúpinu, en á botninum. Þess vegna hafa sniglar þeir, sem lifa í svifinu, annað hvort los- að sig við kuðunginn fyrir fullt og allt (marflugan), eða gert hann örþunnan og léttan, meira til gamans en gagns (vængdopp- an). Fótinn hafa svifsniglamir ekki getað notað á sama hátt og frændur þeirra á botninum, úr honum varð að búa til sundtæki,

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.