NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN__________________155 NN. Blöðin 24 mm breið, tiltölulega stutt. Varafrumurnar í hæð við húð- ina í kring. Varaop óhulin af ná- grannafrumunum. Gráleit slíður. Vex í þurrum jarðvegi. Kollstör (C. macloviana). LL. Blöðin mjó, oftast aðeins 12,5 mm breið með húðtotum. O. Blöðin löng, lin og langydd. Húðtotur báðum megin á blöðunum. Varaop niðurgrafin og hálfhulin af húðtotum. Vaxa í allþéttum toppum. P. Blöðin grágræn, mjög lin, 12 mm á breidd með löngum, örmjóum oddi. Oft uppundin eða samlögð, með varaop aðeins á neðra borði. Þroskalegar húðtotur báðum megin. Heigulstör (C. glareosa). PP. Blöðin blágræn eða grágræn, oftast 1,52,5 mm á breidd, fremur lin. Varaop á báðum hliðum blaðanna, en fleiri á neðra borði. Húðtotur einnig báðum megin, en fleiri og þroskalegri að neðan. (C. canescens og C. brunnescens.) 1. Venjulega morg varaop á efra borði blaðanna. Flatar húðtotur (C) Blátoppastör (C. canescens). 2. Fá varaop á efra borði blað- blaðanna. Uppréttar húðtotur (O). Blöðin heldur ljósari en hjá C. canescens. Línstör (C. brunnescens). OO. Blöðin fagurgræn, tiltölulega stutt og stuttydd, ekki sérlega lin. (Hjá C. ru- fina eru húðtotur báðum megin á blöð- unum, en hjá hinum aðeins öðrum megin.) R. Smávaxin. Blöðin eru venjulega að- eins 12 mm á breidd og 38 cm