________________NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN_________________157 dd. Blöðin 12 mm breið, nokkuð stinn, með margar, oddhvassar tennur í röndunum. f. Blöðin sveigð aftur á bak (útsveigð) og venju- lega með uppundnum röndum. Hornið milli sprotans (sprotaássins) og blöðkunnar stórt. Jarð- renglurnar oftast langar og víðskriðular. Neðstu blaðslíðrin gráleit. Vex einkum í deigum sandi. Bjúgstör (C. incurva). ff. Blöðin innsveigð, hornið milli sprotans og blöðk- unnar lítið. Jarðrenglurnar alllangar. Neðstu blaðslíðrin móbrún. Vex í holtum og holtabörðum. Móastör (C. rupestris). cc. Húðtotur á blöðunum, venjulega báðum megin. Vara- op niður grafin, að nokkru leyti hulin af húðtotum. Blöðin gulgræn (eða með daufum fjólulit), 35 cm á lengd. Varaopin báðum megin. Efjustör (C. subspata- cea). bb. Blöðin flöt eða kjöluð. g. Langar og víðskriðular renglur (vetrarkvíði = ofan- jarðarrenglur). Verður vetrarkvíðinn stundum 1-2 m á lengd cg liggur í grassverðinum eða alveg ofan- jarðar. Blöðin mjó, 13 mm, kjöluð, langydd, odd- mjó, ljósgræn. Húðtotur aðeins á efra borði blaðanna. Varaop einungis á neðra borði. Varafrumurnar í hæð við húðina í kring. Vetrarkvíðastör (C. chordorrhiza). gg. Aðeins neðanjarðar-renglur. h. Ryðbrúnar rótartrefjar á jarðrenglunum. i. Varafrumurnar hér um bil í sömu hæð og húðin í kring. Varaopin óhulin. Engar greinilegar húð- totur á blöðunum. Sjaldgæf tegund. Keldustör (C. magelliana). ii. Varaopin hálfhulin af húðtotum, niðurgrafin. Húðtoturnar vel þroskaðar (varaop og húðtotur aðeins neðan á blöðunum). j. Blöðin fagurgræn, flöt, 13 mm á breidd, snarprend, 34 rif hvorum megin við mið- rifið. Hengistör (C. rariflora). jj. Blöðin grágræn, rennulaga, oftast aðeins 0.5 2 mm breið, snörp þegar nær dregur oddinum.