NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 159 oft rauðbrún með ljósum rákum við þurrkinn. ,p. Húðtotur aðeins neðan á blöðunum. Varaop á báðum hliðum en oftast færri á efra borði. Vex í vatni og blautum engjum Gulstör (C. Lyngbyei). pp. Húðtotur báðum megin á blöðunum. Varaop einnig báðum megin, oft mörg á efra borði. Vex í votlendi, einkum ná- lægt sjó. Marstör (C. salina var. kattega- tensis). oo. Blöðin venjulega 13 mm breið, fremur stutt. Blaðslíðrin gráleit, ekki sérlega gild. r. Blöðin stutt, 38 cm á lengd og aðeins 12mm breið, gulgræn með smáum tönnum í röndunum. (Oft með orpnum röndum.) Húðtotur og varaop báðum megin, en húðtoturnar eru stundum að- eins fáar á efra bbrði blaðanna. Efju- stör (C. subspatacea). rr. Blöðin 10,15 cm á lengd og lin, 23 mm á breidd, grænbleik eða gulgræn. Þroskaðar snubbóttar tennur í blaðrönd- unum. Húðtotur og varaop báðum meg- in. Skriðstör (C. norvegica). nn. Blöðin ekki gulgræn, litlir eða engir upp- hleyptir gárar á slíðrunum. s. Blöðin smávaxin (venjulega 12 mm á breidd og 38 cm á lengd), bogin inn á við, án húðtota. Varaop aðeins neðan á blöðunum. Móastör (C. rupestris). ss. Blöðin stærri, 25 mm breið, alllöng, lítið eða ekkert bogin, oftast með húðtotum. t. Bilin milli sprotanna, sem koma hver á eftir öðrum, stutt og regluleg. (Þegar jurtin vex í mikilli bleytu er sprota- gerðin stundum óreglulegri, en þá sjást greinilegir upphleyptir gárar á blað- slíðrunum.) Jarðstöngullinn er grófgerð- ur og sterkur. Blöðin löng, stinn og odd-